Hraðakstur af götunum og á inn á lokuð akstursíþróttasvæði
Það er alveg skýrt í mínum huga að við Örvar hættum í stjórn Kvartmíluklúbbsins 1982. Þetta vor, 1982 setti ég Corvettuna á götuna eftir þriggja ára upptekt og þessir tveir atburðir eru tengdir órjúfanlegum böndum í huga mér.Hálfdán tók virkan þátt í starfi klúbbsins löngu áður en hann varð formaður 1982. Ekki man ég hvernig hann kom að þessari sandspyrnukeppni sem þú nefnir en líkast til hefur hann verið keppnisstjóri hennar og því er eðlilegt að þú sért með skjal undirritað af honum.