Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
King of the Street 2017
SPRSNK:
Dagana 30. júní og 1. júlí fer fram King of the Street á Kvartmílubrautinni.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 29. júní kl 23:59.
Keppt verður í áttungsmílu, Auto-X, tímaati og kvartmílu
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl/mótorhjól
Hjálm
Vera meðlimur í akstursíþróttarklúbb innan AKÍS eða MSÍ
Skráð ökutæki þurfa vátryggingarviðauka
Keppnistæki:
Öll keppnistæki skulu vera skoðuð og á númerum.
Allar tegundir af eldsneyti eru leyfðar.
Keppnisfyrirkomulag (ATH fjöldi ferða getur breyst eftir þátttökufjölda)
Keppt verður í 4 greinum og fær keppandi stig úr hverri grein. Samanlögð stig úr öllum greinum ákvarða sigurvegara King of the street, einnig verða veitt verðlaun fyrir hverja keppnisgrein fyrir sig.
Áttungsmíla:
Pro tree, second chance. Ótakmarkaðar tímatökuferðir, en keppandi þarf að fara að lágmarki 2 tímatökuferðir.
AutoX:
Keyrðar verða 3 umferðir.
Tímaat:
Keyrðar verða 2 umferðir, hver umferð samanstendur upphitunarhring, 3 tímatökuhringjum og kælihring.
Þessi keppni er jafnframt hluti af íslandsmótaröð í tímaati.
Kvartmíla:
Full tree, second chance. Hver keppandi fær 3 tímatökuferðir.
Flokkar:
Það verður keppt í 2 flokkum, bílum og mótorhjólum.
Skráningarfrestur.
Skráningu lýkur fimmtudaginn 29. júní kl. 23:59
Skráning King of the street - stigakeppni
Bílar: http://skraning.akis.is/keppni/63
Mótorhjól: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe3VDKeyZz5-gDMeAynTPY2rnpB04KS5tQHmqTMUkCUnt2x4Q/viewform?usp=sf_link
Skráning í einstakar keppnir
Áttungsmíla
Bílar: http://skraning.akis.is/keppni/60
Mótorhjól: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe3VDKeyZz5-gDMeAynTPY2rnpB04KS5tQHmqTMUkCUnt2x4Q/viewform?usp=sf_link
Auto-X
Bílar: http://skraning.akis.is/keppni/61
Mótorhjól: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe3VDKeyZz5-gDMeAynTPY2rnpB04KS5tQHmqTMUkCUnt2x4Q/viewform?usp=sf_link
Tímaat
Bílar: http://skraning.akis.is/keppni/62
Mótorhjól: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe3VDKeyZz5-gDMeAynTPY2rnpB04KS5tQHmqTMUkCUnt2x4Q/viewform?usp=sf_link
Kvartmíla
Bílar: http://skraning.akis.is/keppni/59
Mótorhjól: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe3VDKeyZz5-gDMeAynTPY2rnpB04KS5tQHmqTMUkCUnt2x4Q/viewform?usp=sf_link
Keppnisgjald:
Hægt verður að skrá sig í stakan viðburð innan KOTS ef ekki er áhugi að taka þátt í öllum greinunum
ATH!! skráning telst ekki gild fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Keppnisgjald 16.000 kr., innifalið er keppnisskírteini
Stök keppni: 6.000 kr., innifalið er keppnisskírteini
Við fyrstu skráningu á keppnistímabili bætist við 4.000 kr. gjald vegna slysatryggingar ökumanns.
Nánari upplýsingar
í síma 8473217 eða jonbjarni@kvartmila.is
SPRSNK:
King of the Street - Stigagjöf
Stig miðast við fjölda þátttakenda margfaldað með 10 (en þó á lágmarki m.v. 16 þátttakendur).
Þannig fást t.d. 160 stig fyrir besta árangur í hverri mælingu.
Veitt verða stig fyrir eftirtalin atriði:
Áttungsmíla:
Sæti - viðbragð - 60 ft. - 330 ft. - 660 ft. hraði - 660 ft. tími
Kvartmíla:
Sæti - viðbragð - 60 ft. - 990 ft. - 1320 ft. hraði - 1320 ft. tími
Tímaat:
Besti tími - Meðaltal 3ja bestu tíma - Mesti hraði - Besti millitími 1 - Besti millitími 2
Auto - X (stig tvöfalt hærri í hverjum flokki 320):
Besti tími - Meðaltal allra tíma
Sjá meðfylgjandi stigatöflur m.v. 16 og 32 keppendur
SPRSNK:
Hér koma helstu upplýsingar um dagskrá King of the street
Dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:
Föstudagurinn 30. júní
Áttungsmíla
Mæting 18:00 - 18:30
Pittur lokar 18:30
Skoðun 18:00 - 19:00
Keppendafundur 19:00
Tímatökur 19:15 - 20:45
Keppni 21:00 - 23:00
Laugardagurinn 1. júlí
AutoX
Mæting 9:00 - 9:30
Skoðun 9:15 - 9:45
Keppendafundur 9:45
Æfing 10:00 - 10:30
Keppni 10:30 - 12:15
Tímaat
Mæting 13:00 - 13:30
Skoðun 13:15- 13:45
Keppendafundur 13:45
Æfing 14:00 - 14:30
Keppni 14:30 - 16:30
Kvartmíla
Mæting 17:00 - 17:30
Skoðun 17:15 - 18:00
Keppendafundur 18:00
Tímatökur 18:15 - 19:45
Keppni 20:00 - 22:00
Í spyrnukeppnunum er möguleiki fyrir tæki að koma sem uppfyllingarefni/sýningar og ef þú hefur áhuga á því skaltu hafa samband við Jón Bjarni í síma 8473217. ATH það nægir ekki að mæta á svæðið, það verður að hringja á undan
Aðgangseyrir fyrir áhorfendur:
Föstudagur - 1.500kr
Laugardagur - 2.000kr
Báðir dagar - 2.500kr
Félagsmenn geta nýtt inneign á félagsskírteini til að greiða aðgangseyri en nauðsynlegt er að framvísa félagsskírteini í miðasölu til að nýta inneignina.
Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.
Keppendur fá afhent 3 helgararmbönd, fyrir sig og tvo aðstoðarmenn
Kristján Stefánsson:
Hverjar eru reglurnar fyrir spyrnuna. Varðandi dekk. Pústkerfi og þess háttar ?
SPRSNK:
--- Quote from: Kristján Stefánsson on June 25, 2017, 18:56:52 ---Hverjar eru reglurnar fyrir spyrnuna. Varðandi dekk. Pústkerfi og þess háttar ?
--- End quote ---
Keppnistæki:
Öll keppnistæki skulu vera skoðuð og á númerum.
Allar tegundir af eldsneyti eru leyfðar.
Þ.e. nánast engar takmarkanir!
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version