Þetta hefur því miður mikið farið á fésbókina, ég ætla að skjóta á að það sé að stórum hluta vegna þess hversu leiðinlegt það er að setja myndir inn á þessar spjallsíður.
Á facebook smellir maður bara á upload í símanum og málið dautt, myndin í fínni stærð og allt eins og það á að vera, á þessum spjallborðum þarf maður að hýsa myndina annarstaðar og velja svo viðunandi stærð á myndinni og setja svo tengilinn hér inn með img tag eða nota viðhengin hér sem er glatað.