Kvartmílan > Aðstoð
Hljóðkútar
(1/1)
diddi125:
ég er að spá í hljóðkútum, nú vantar mig kúta sem dempa hljóðið nógu vel fyrir skoðun og svo maður sé nú ekki að gera alla brjálaða á rúntinum :mrgreen: en hvaða kútum mælið þið með fyrir vel graða big block chevy?
hef verið að spá svoldið í þessum http://www.summitracing.com/int/parts/imm-88105cb
en hef bara ekki hugmynd um hversu mikið þeir dempa hljóðið
annars eru allar hugmyndir vel þegnar
diddi125:
enginn með neina hugmynd, hvað eruð þið að nota?
cv 327:
Sælir.
Setti svona undir Tahoe-inn minn og er mjög ánægður.https://www.summitracing.com/int/parts/pye-mvr200s/overview/. Búinn að fara í skoðun og ekkert vandamál. Ekki hávær inni í bílnum en þú heyrir vel ef þú gefur inn. þetta er fjölskyldu bíllinn :D
Setti líka svona undir GMC van og eigandinn er líka mjög sáttur.https://www.summitracing.com/int/parts/mpe-10416/overview/
1965 Chevy II:
Mæli með Borla XR-1 eða Flowmaster super 44
diddi125:
er að hugsa um 3'' púst og er með nú þegar svona opnar túpur cherry bomb glasspack og þær náttúrulega gera mjög lítið svo ætla ég að hafa kúta sem lækka vel í honum og hafa svo cut outs fyrir kúta beint út
Navigation
[0] Message Index
Go to full version