Kvartmílan > Almennt Spjall
Ónýttir sólardagar á brautinni !
65tempest:
HVERNIG ÞARF VEÐRIÐ AÐ VERA TIL AÐ EITTHVAÐ SÉ KEYRT Á BRAUTINNI ?
Eftir tvo leiðindamánuði veðursfarslega þá loksins lætur sólin sjá sig, en þá gerist það undarlega að kvartmilubrautin er lokuð. :-({|=
Svar óskast
kveðja
Rúdólf
ÁmK Racing:
Off topic en verður bílum eitthvað leyft að keyra á Laugardaginn.Þá er ég að tala um eftir hjóla dæmið?Kv Árni
Ingó:
Sælir.
Brautin var opin á sunnudaginn fyrir alla eftir kl 16. Það komu aðeins 4 bílar. [-X
65tempest:
Er þá einungis gert ráð fyrir tveimur tímum í eftirmiðdegi á sunnudegi fyrir félagsmenn með bíla á tveimur helgum.
Þá má einnig spyrja hvers vegna brautin var ekki opin á síðast laugardag, besta góðviðrisdegi sumarsins ?
Auraáð klubbsins eru kannski farin að draga allan vilja úr mönnum. :-({|=
Harry þór:
það kemur sól og þá eiga bara menn að taka sér frí og opna brautina svo sumir geti prófað ? Þetta þykir mér vera frekjulæti.
Og þessir sumir mæta svo ekki þegar það er auglýst keppni hvað þá á æfingar vegna þess að klukkan er of margt og á röngum degi.
það er eitt ráð við þessu og það er ráða menn til að hafa brautina klára þegar viðrar , þyrfti ekki nema svona 5 kalla sem væru bara í startholunum og veðurspána á hreinu. Þetta gerir 1,5 mill per mán + launatengd gjöld og reiknið svo !
mbk harry Þór í sólskinsskapi
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version