Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar

Turbo???????

(1/2) > >>

Árni S.:
Fyrirsögnin ætti allavega að vekja athygli ykkar turbogaura!!! En mig vantar einhverjar síður sem eru með verð á túrbínum og drasli í kring um þær. Og veit einhver hvað ACCEL DFI kostar, ég geri nú ráð fyrir að þetta sé fokdýrt en langar að vita hvað ég þyrfti að selja mikið af líffærum til að eiga fyrir einu kerfi.
Svo kemur aðalmálið, ég er ekki alveg að fatta hvernig maður velur sér rétta túrbínu fyrir comboið sitt, þá er ég að meina pústhliðina á túrbínunni, ég veit hvernig maður velur rétta "compressor". Þetta hefur aðeins verið að veltast fyrir mér, hef verið að lesa mér aðeins til um turbo, og verð að segja að ég er kominn með dellu fyrir því, en allar greinar sem ég les segja bara að þetta sé flókið mál og ekkert meira um það mál að segja.... en byrjið að bauna upplýsingum ef þið hafið þær

Kv. Árni Samúel Herlufsen

Gunni gírlausi:
Já trúboða starfið er óeigingjarnt en slítandi...

Hér er eitt sem ætti að kveikja í þér:
http://www.nex.net.au/users/brand/dyno1336.mpeg

"Brett Waine won the unlimited class at Summernats with 1346HP. That is an average of three runs on PUMP fuel!!!! The fuel is the same as our 93 octane. The engine was a small block Chev twin turbo running a Autronic SM2 and CDI."

Hringdu bara, 6944933

Gunni

baldur:
http://www.turbomustangs.com/turbofaq.htm
http://not2fast.wryday.com

Árni S.:
Ég þakka skjót svör, þetta eru frábærar síður. En vitið þið um einhvern sem hefur reynslu af þessu DFI kerfi, ég er að heyra sögur um að þetta sé voðalega frábært en hef ekki enn fengið alvöru reynslusögur.... og hvernig er þetta autronic dæmi að virka?? Og er kostnaðurinn eitthvað við allra hæfi?? En ég er allavega orðinn rosalega heitur fyrir þessu turbodæmi, aðallega vegna þess að þetta setur götubílana á hærra plan. Enda hafa síðustu HotRod blöð verið stútfull af hetjusögum um fjölskyldubíla sem eru að rúlla á lágum 10sek á götudekkjum, og sumir hverjir með 60fet upp á 2,2+sek, og bara vegna þess að dekkin halda ekki orkunni. T.d. Caprice-inn sem er í síðasta blaði. En ég er svona að reyna að afla mér upplýsinga upp á framtíðina að gera, þetta er ekkert sem er að fara að gerast í nánustu framtíð.... allavega ekki á meðan maður er fátækur námsmaður :D

En endilega haldið áfram að koma með upplýsingar, það er vonandi fullt af liði sem er í svipaðri stöðu og ég, þ.e. þyrst í turbofróðleik.

Kv. Árni Samúel Herlufsen

Gunni gírlausi:
Sko,

Autronic er með autotune, sem er sem sagt að þú segir tölvuni bara hvað þú ættlar að hafa blönduna á t.d. 7000 rpm og 180% load og þá verður það bara þannig. En þú verður að vera með spes mæli sem þú færð lánaðan þér að  kostnaðarlausu til að geta notað autotune.

Autronic er líka eina "standalone" sem ég veit um sem getur látið 2ja lítra vél með 1800cc(160lbs) spíssa ganga hægagang á 750rpm með 15:1 afr.

Kostir þess að vera með tölvu í staðin fyrir blöndunga er auðvelt að sjá...

 Gunni

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version