Kvartmílan > Almennt Spjall

Bílar fyrir bíómynd

(1/1)

Jón Bjarni:
Framleiðendur þessarar myndar höfðu samband við okkur og vildu athuga hvort við gætum hjálpað þeim með þetta

--- Quote ---Myndin kallast Augnablik (Moments) og fjallar um tvo æskufélaga, Pétur(75) og Þórarinn(77), sem eru samankomnir á elliheimili. Þeir hafa báðir misst konur sínar. Þeir láta ekki einmannaleika elliheimilisins fanga sig, og stunda það að strjúka af elliheimilinu, á sinn eigin griðarstað sem er hús í rólegu umhverfi í fallegum Mosfellsdalnum. Þar eru þeir með bílskúr og gera upp bíla, sem þeir nota svo í að keppa í kappakstri á götum Reykjavíkur. Moments er kómedía þar sem boðskapurinn er að vera hamingjusamur og lifa lífínu, þrátt fyrir aldur. Þetta er mjög touchy umfjöllunarefni, sem er ætlað að túlka á skemmtilegan og húmorískan hátt.

Það eru tvær senur sem vantar bíla í:

1.
Það er ein sena þar sem þarf ''eldri bíla'' - Flotta sportbíla, helst frá '50s, '60s, '70, ´80's. Engar ákveðnar tegundir. Þessi sena gefur til kynna að þeir gömlu sem eru að race-a, hafa verið að gera það lengi. Þeir eru staðsettir á túni/garði í Mosfellsdalnum.
Þessi sena verður tekinn upp föstudaginn 9 maí

2.
Aðalsenan er rétt fyrir race-ið í senunni þurfa að sjást fullt af sportbílum. Aðalatriðið er að eldri mennirnir koma á eldri bíl - ég sé fyrir mér Chevi Impala '67árgerð eða þar í kring. Hinir bílarnir (sem yngra fólkið á að vera á) eru nýrri týpur. En tegundir skipta ekki máli. Það skiptir meira máli að hafa þá litríka. Þeir þurfa einfaldlega að líta líklegir út til að vera keppa í ''race''. Litríkin ýtir undir ýktan heim götukappaksturs. Þetta er tekið upp laugardaginn 10 maí

Ef þú hefur áhuga á að aðstoða við þessar tökur vinsamlegast fylltu út formið hér að neðan

https://docs.google.com/forms/d/1z3dITYEn282SVy1lff1GXVhwhvdTbs4W0cliAaIAsPY/viewform

Ef eitthverjar fleiri spurningar vakna þá er hægt að hafa samband við aðstandendur myndarinnar í emaili: valdimarkuld@gmail.com
--- End quote ---

Alpina:
Talaðu við kruser...

Navigation

[0] Message Index

Go to full version