Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
74' Dodge Dart Swinger
sponni95:
Sælir.
Ég er að búinn að vera að reyna að hafa uppi á einum gömlum Dart Swinger sem ég átti fyrir nokkrum árum síðan, ekkert gengið hingað til.
Hann var grænn með stóra beyglu hægra meginn að aftan
Síðast þegar ég vissi fór hann í austurhlíð í Eyjafirðinum, reyndi að hringja í þá en þeir sögðust ekki muna eftir honum.
Ef einhver hefur séð hann eða veit jafnvel hvað varð um hann væri það vel þegið að fá að vita það, jafnvel hvort hægt væri að eignast hann aftur :D
Kristján Skjóldal:
það er nú eitthvað skrítið ef þeir í austurhlíð þykjast ekkert muna eftir honum he he frekar spes bill þar á bæ :mrgreen:
sponni95:
Já hann var frekar spes þar sem þetta má nú teljast vera fyrsti bíllinn minn
Það getur svosem vel verið að karlinn sem á partasöluna þar sé að vinna í honum og vilji ekki að fólk sé að seilast eftir honum.
Kristján Skjóldal:
já það er klárt mál að Stjáni Venna veit allt um þennan bíl ef hann hefur Í austurhlíð komið :mrgreen:
sponni95:
Það er í sjálfu sér mjög fínt ef hann hefur fengið almennilega upptekt.
Maður er bara að leita sér að einhverju verkefni og Dartinn var sá fyrsti sem mér datt í hug.
Síðan sér maður óheyrilega mikið eftir honum ](*,)
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version