Markaðurinn (Ekki fyrir fyrirtæki) > BÍLAR til sölu.
Pontiac Firebird Trans Am árg 1995
(1/1)
Jón Þór Bjarnason:
Er með Pontiac Firebird Trans Am árg. 1995
Þetta er algjör gullmoli og dekurdrós.
Er að hugsa um að selja vegna áhuga á eldri bíl en er varla að tíma því að láta þennan fara..
Veiti allar upplýsingar aðeins í síma 899-3819
Ásett verð 1.850þús
Jón Þór Bjarnason:
Búinn að fá nokkur tilboð með skiptum sem eru ekki beint að heilla mig en ekkert staðgreiðslu tilboð ennþá sem ég væri spenntastur fyrir.
Þetta er klárlega kagginn sem þú ert búinn að vera leita að.
S:899-3819
Jón Þór Bjarnason:
Pontiac Trans Am árg 1995
Dekk SUNNY SN 3800
Framan 235/40´18
Aftan 235/35´20
Nýlegir gormar og demparar allann hringinn.
T toppur sem lekur ekki þó svo hann sé smúlaður með háþrýstidælu.
Stórglæsilegur bíll í alla staði sem hefur fengið extra góða ummönnun.
Þessi bíll hefur ekki verið notaður sem spólgræja eða þjösnast á honum.
Bíllinn er þrifinn og bónaður reglulega.
Riðlaus með öllu og lakkið lítur virkilega vel út.
Ein smá saumspretta á bílstjórasæti sem auðvelt er að laga en sést nánast ekkert.
Þessi bíll var aðallega bílskúrsbíll þangað til ég eignaðist hann en ég hef notað hann óspart á rúntinum og í langkeyrslur.
Ástæða sölu er sú að ég hef augastað á gömlum amerískum kagga.
Ásett verð er 1850þúsund
Ég er til í að lækka mig lítillega ef að ég fæ staðgreiðslu tilboð.
Ég tek helst ekki á móti fyrirspurnum í gegnum kvartmila.is þar sem það geta liðið nokkrir dagar á milli þess sem ég kíki hérna inn.
Uppl S:899-3819 NONNI
Jón Þór Bjarnason:
.
Navigation
[0] Message Index
Go to full version