Author Topic: Nissan Patrol verkefni mikið breyttur jeppi  (Read 2793 times)

Offline Diggler

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 223
    • View Profile
Nissan Patrol verkefni mikið breyttur jeppi
« on: August 24, 2013, 20:57:19 »
Ég ætla að skoða áhugan á þessum hérna og ætla að lista ástand hans, hvað hefur verið gert og hvað er eftir og bið áhugasama endilega um að hafa samband.

Nissan Patrol grind er af Y60 bíl öll ryðbætt og yfirfarinn, nýjir gormar og margt fleira

Vél er úr Y60 ´97 bíl 2.8 Dieselvél sem var tekinn upp fyrir nokkur þúsund kílómetrum, þétt og góð vél sem rýkur alltaf í gang og skilar sínu, sverara púst, nýr 3 laga vatnskassi er í bílnum..

Body af Y61 2001 mdl bíl sem var heilsprautað í desember 2012 og er með leðurinnréttingu, rafmagni í sætum og speglum, tvívirk topplúga.

Bíllinn er á mjög nýlegum og lítið notuðum 46" Mickey Thompson Baja Claw dekkjum og ný smíðuðum felgum með úrhleypibúnaði.

Bíllinn er mjög mjúkur og þægilehur í akstri, frábær ferðabíll og nýbúið að síkka skástífur að aftan fyrir 46" breyttingu og margt margt fleira..

Bíllinn er ökufær og með ´13 skoðunn en þarfnast lokafrágangs eftir breytingu sem felur meðal annars í sér að yfirfara rafkerfi aðeins og grisja úr víra sem ekki eru í notkun, tengja topplúgu og nokkra mæla, setja þarf glussatjakk á stýrismaskínu til að styrkja stýrið og hann fylgir og eitthvað meira smávægilegt..






Þessi bíll er búnað kosta milljónir í smíði, bara dekk og felgur er 1.000.0000 kr,- og sprautunin 500.000 kr.-

Með bílnum fylgir hellingur af varahlutum eins og Intercooler, bremsudiskar, púströr, flækjur, gormar, rafkerfislúm, felgur, kaðlakassi, tengdamömmubox og margt margt fleira...

Skoða hin ýmsu skipti, er opin fyrir flestu braski ódýrar og jafnvel aðeins dýrara.

Þessi er alveg að verða 100% og verður þá óstöðvandi tryllitæki.

Selst á sanngjörnu verði ;)

Sendið skilaboð í einkapósti
« Last Edit: August 26, 2013, 12:06:04 by Diggler »

Offline Diggler

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 223
    • View Profile
Re: Nissan Patrol verkefni mikið breyttur jeppi
« Reply #1 on: August 28, 2013, 12:40:31 »
Upp með jeppann ;)

Offline Diggler

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 223
    • View Profile
Re: Nissan Patrol verkefni mikið breyttur jeppi
« Reply #2 on: September 01, 2013, 17:24:19 »
Þessi er 95% klár eftir breytingu og vel ökufær og alveg ostöðvandi  8-)

Offline Diggler

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 223
    • View Profile
Re: Nissan Patrol verkefni mikið breyttur jeppi
« Reply #3 on: September 08, 2013, 12:39:52 »
Sennilega seldur en set hann einusinni enn upp samt sem áður ;)

Offline Diggler

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 223
    • View Profile
Re: Nissan Patrol verkefni mikið breyttur jeppi
« Reply #4 on: September 14, 2013, 12:35:47 »
Seldur ;)