Kvartmílan > Ford
Myndir frá All Ford Nationals @ Carlisle 2013
Moli:
Skelltum okkur nokkrir á þessa mögnuðu Bílasýningu í Carlisle í Pennsylvaniu um daginn. Sýningin sem var haldin um sl. helgi var All-Ford Nationals og eins og titillinn segir voru þetta aðeins bílar úr smiðju FoMoCo. Sýningarsvæðið er Carlisle Fairgrounds þar sem margar bílasýningar eru haldnar yfir sumrið, sjá hér ----> http://www.carlisleevents.com/events GM-All Nationals er einmitt um næstu helgi, og MOPAR Nationals seinna í Júlí. \:D/
Sýningin í heildina var frábær og mikið af bílum sem maður hafði aldrei séð áður, og eins mikið af óuppgerðum og dýrum bílum, Swap-Meetið stórt og ef þig vantaði eitthvað í Ford þá fannstu það, sérstaklega ef þú áttir 65-73 Mustang. Einnig kom mér hálfpartinn á óvart hvað það var mikið af original Shelby dóti á Swap-Meetinu. Shelbyarnir voru þarna í bunkum og ekki þverfótað af öllum kynslóðum Mustang. Fengum grenjandi rigningu á föstudeginum sem varð til þess að það var minna af fólki á Swap Meet-inu, en það rofaði til á Laugardeginum og fengum glampandi sól og 25°C hita alveg fram á síðasta dag. 8-) Þetta er Bílasýning sem enginn bílaáhugamaður ætti að missa af, sérstaklega ef hann á Ford. :wink:
1970 Mercory Cougar Eliminator óuppgerður (með BOSS 302 vél)
'70 GT-350 Shelby.
Kanarnir voru ekki mikið fyrir að láta sjá sig í rigningunni en það var betra fyrir okkur íslendingana sem eru alvanir henni.
2013 Ford Mustang Cobra-Jet, bíll #20 af 50 framleiddum.
2013 JLP Cobra Jet Mustang Huge Wheel Stand
'68 GT-350 Shelby.
'68 GT-500 Shelby.
Daytona Coupe.
...meira til, '68 GT-350 Shelby.
Í þessu tjaldi, frá vinstri: 1970 BOSS 302 sjúskaður og óuppgerður til sölu á 31.000$, '66 Shelby GT350-Hertz, '67 GT350, '70 BOSS 302 uppgerður (59.000$)
Late Shelbys.
Eitthvað fyrir Aua. :mrgreen:
...og Bigga. 8-)
2013 BOSS 302.
Hilmar var vinsælasti maðurinn á svæðinu þegar fólk komst að því að hann hefði tekið Saleen bílinn með sér alla leið frá Íslandi!! =D> =D>
Original Thunderbolt Fairlane.
Orignal 427 AC Cobra.
Bíllinn sem notaður var hvað mest í Starsky & Hutch myndinni frá 2005.
Hér er svo bíllinn sem notaður var í þáttunum frá því um 1980.
427 SOHC
Óuppgerður '66 GT-350 Shelby sem nýlega var keyptur af upphaflegum eiganda, ég kíkti í myndaalbúmið við bílinn og hann var gjörsamlega á kafi í drasli í einhverri hlöðunni í 25 ár.
'65 AC Cobra sem hefur gengið í gegn um ýmislegt á lífsleiðinni.
"K" code, High Performance Mustang Fastback.
'66 Shelby GT-350 Hertz, sjaldan séð jafn sléttan bíl.
Flott project, amk. skráningin. :mrgreen:
1968 Ford Mustang Fastback 428 CobraJet, ekki margir svona til.
Saleen 351 Prototýpa.
1967 Shelby GT-500, óuppgerður.
Shelby Stage-1, klikkaði reyndar að taka mynd framan á hann.
'67-GT350.
'66 GT-350Hertz
'68 og '69 Shelbys.
Hluti af svæðinu.
Allt til í Ameríku.
Fairlanes, Victoriur & Crown Victoriur.
Burnout Keppni.
Steve Saleen að kvitta á plaköt og knúsa Saleen eigendur.
3x '70 BOSS 302's.
Vaughn Gitten Jr. driftkóngur.
Hann lék smá listir á svæðinu á Laugardeginum.
Vaughn Gitten Jr. Drifting @ Carlisle Ford Nationals 2013
Splunkynýr 2013 GT-500 bíl.
Redneckarnir voru líka mættir.
Rúsínan í pylsuendanum, '69 BOSS 429 KK#1945, óuppgerður bíll, allur original, ekin 22.000 mílur og EINN eigandi. Ásett verð var 250.000$. Skv. eigandanum heldur hann því fram að einhver frá Kar Kraft (sem breyttu bílunum í BOSS 429) hafi lent í að tjóna hann aðeins í reynsluakstri. Merki þess er á innri brettum bílsins sem og original replacement húddi.
Ramcharger:
Þetta var meiriháttar að skoða, takk fyrir mig :D
Sævar Pétursson:
Gjörsamlega klikkað
Yellow:
Svo flottar myndir hjá þér Maggi, væri svo mikið til að fara á svona viðburð,,,,, eeeeeeeef '69 Charger er staðnum :lol:
Moli:
--- Quote from: Yellow on June 18, 2013, 15:29:43 ---Svo flottar myndir hjá þér Maggi, væri svo mikið til að fara á svona viðburð,,,,, eeeeeeeef '69 Charger er staðnum :lol:
--- End quote ---
Mopar Nationals í Júlí.. nóg af Charger þá. :wink:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version