Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Smá spurning fyrir ykkur gúrúa... Big Block Ford
(1/1)
Gulag:
Sælir félagar..
ég er með 460 BB Ford, og 750 Holley..
Það kemur vaccum úrtak aftan á blöndungnum, stórt, sem er tengt í annað ventlalokið..
ég blindaði þetta á blöndungnum, og gangurinn batnaði alveg svakalega í vélinni
og.. hér er spurningin
Er ekki alveg í lagi að blinda þetta, og setja þá bara síu á ventlalokið?
er þetta nokkuð eitthvað til að mynda negative þrýsting í vélinni?
ég er ekki mjög umhverfisvænn, þannig að ef þetta er til að "endurnýta" eitthvað sullumbull loft úr vélinni þá má það alveg fara út í andrúmsloftið mín vegna.. bara svona til að það sé á hreinu.. :)
Kiddi:
Sía ætti að vera í lagi... persónulega tæki ég hosu úr ventlalokinu og upp í lofthreinsara.
Þetta úrtak á Holley'inum er ætlað fyrir brake booster'inn þ.e. vac. lögn sem sér örugglega tæp 20"Hg :lol:
Gulag:
brake boosterinn er tendur í milliheddið, ásamt þurrkumótornum og ein slanga fer niður í sjálfskiptingu..
ætti ég að nota þennan stút á blöndungnum frekar en á milliheddinu?
Dodge:
Það skiftir í raun engu hvort þú notar stútinn á milliheddinu eða blöndungnum fyrir bremsurnar, en aldrei skaltu tengja sveifarhúsöndun undir blöndung (eða eins og þarna hefur verið, í neðanverðann blöndung þ.e. undir bensínblöndun) þá ertu bara að taka falskt loft og fokkar upp blöndunarhlutfallinu.
Gulag:
ok,, takk fyrir þetta strákar... !!
Navigation
[0] Message Index
Go to full version