Kvartmílan > Aðstoð
Ford 302 Aðstoð óskast
(1/1)
Halli B:
Keyfti bíl um daginn með 5.0l Mótor, Fyrri eigandi hélt að mótor væri frostsprunginn en hafði lítið sem ekkert athugað það, Skipting og skaft lágu aftur í bílnum.
Við nánari athugun sá ég að einn af frosttöppunum hafði poppað úr blokkinni undir pústgrein.
Frosttappanum var komið fyrir, Skipting hengd á mótor og skaftið í.
Bíllinn flaug í gang í fyrsta starti og engin óhljóð í mótor en hinsvegar dropar vatn frekar hratt af bílnum og vatnið virðist koma eh staðar út á bakvið skiptinguna. Mér sýndist ég ekki sjá neitt að neinum öðrum töppum (gæti þó skjátlast).
Núna er einsog það sé vatn í mótorolíu og hún er orðin ljósgrá :(
Hvað segiði spekingar með þetta? Er ekki ólíklegt að það sé frostsprunga í blokk ef að tappinn hefur poppað úr?? Er einhver leið fyrir vatn til að komast í olíu á bakvið skiptinguna ](*,)
Hvað er til ráða??
Með fyrirfram þökkum
Halli Bogi
binni kall:
spurning hvort þetta komi aftan af heddinu ef svo er þetta sennilegast pakkning. annars hljómar þetta eins og frostsprunga í blokk
Navigation
[0] Message Index
Go to full version