Til sölu er Ford Mustang GT Gullmoli 2002 árg, hann er ekinn rétt tæp 100 þús. bíllinn er fluttur inn 2005 og ég er annar eigandi á íslandi.
bíllinn var búinn að standa í tæpt ár áður en ég kaupi hann og stóð alltaf inni undir ábreiðu á veturnar.
viðhaldið hefur verið gott, það er ný búið að skipta um olíu og síu á vél og skiptingu, sem og eru öll kerti og háspennukefli ný. (16.06.2012)
Undirvagninn er eins og nýr og sér ekki á neinu.
Það eru ennþá sömu afturdekk undir bílnum og þegar ég keypti hann fyrir 2 árum svo að það er ekki búið að þjösnast mikið á honum.
Í Apríl 2012 var bílnum síðan breytt í Bensín/Metan hjá
www.metanbill.is metanbill.is notar búnað frá Eurogas sem er einn fremsti framleiðandi á gaskerfum í heimi.
http://metanbill.is/Allt_um_breytinguna/Metankerfi%C3%B0Kerfið virkar þannig að vélin fer í gang á bensíni og keyrir á bensíni þangað til að vélin nær 40°hita sem er ca 1,5 km
þegar því er náð skiptir vélin sjálfkrafa yfir á metan í keyrslu, í mælaborðinu er síðan takki og mælir sem sýnir hvað mikið gas er eftir og þegar það klárast skiptir búnaðurinn svo sjálfvirkt aftur yfir á bensín. einnig er hægt að skifta á milli bensíns og gas handvirkt með takkanum í mælaborðinu.
vélin tapar ca 10-12% afli við að aka á gasi vegna þess að bruninn er töluvert hægari en á bensíni. hinsvegar eru þó um 230 hö af 260 eftir svo að það dugar honum ágætlega á milli staða, og ef að þörf er á öllum hrossunum er sáraeinfalt að ýta á einn takka.
kútarnir í skottinu eru 2 stk trefjakútar sem vigta samtals 40 kg, sambærilegir járnkútar vega 100 kg, en bara trejakútarnir kosta 300 þús.
heildarbreytingin kostar um 850.000
tankarnir taka ca 15,5 rúmmetra af gasi sem er í 1raun það sama og 15,5 bensínlítrar.
í bænum kemst hann ca 110-120 km á þessum 15,5 lítrum
Líterinn af metani kostar 149 kr.
Einnig er hægt að fá bílinn án metankerfisins.
smá upplýsingar um bílinn
*Tegund Ford Mustang GT
*vél V8 4,6 2 ventla 260hö
*Árg 2002
*Akstur 100.000 km
*Litur svartur
*ssk/bsk sjálfskiptur
*Búnaður/aukahlutir:
17" Bullit felgur á 245/45/17 BF Goodrich dekkjum, einnig er 1,5 " spacer að aftan ( ekki komnir á myndum)
svört leðursæti í topp standi.
Mach hljóðkerfi og bassabox, 6 diska magasín.
8000k Xenon í aðalljósum
Það getur líka Tuner frá Superchips fylgt með ef um semst.
Óska eftir tilboði
Ekkert áhvílandi og skoða ýmisleg skipti
kv. Styrmir 846-3448