Kvartmílan > Almennt Spjall
að keppa næsta sumar
Kristján Skjóldal:
nú eru fullt af gjöldum þarna sem virðast vera til sem maður hefur ekki séð áður og spyr ég hver borgar þaug og eins með ný smíði hver borgar hver skoðar og hvenar?
Keppnisskírteini 15000
Dagsskírteini – gildir aðeins eina keppni 5000
Nýliðaskírteini (aldrei keppt áður) 2500
Staðfesting keppnisskírteinis pr.skírteini 5000
Homologation form F.I.A. 10000
Vörugjaldsúttekt/niðurfelling gjalda 15000
Svæðisskoðunarheimild 150000
Brautarúttekt v. reglugerðar 35000
Önnur skírteini og form 2000
Aðalskoðun ökutækis v. nýsmíði 20000
Sérvalið keppnisnúmer 100
1965 Chevy II:
Þrándur ætti að geta svarað því, hringdu bara í hann.
Framkvæmdastjóri Þrándur Arnþórsson 514 4280 GSM 821-3919
Lárus Blöndal Formaður
Guðbergur Reynisson Varaformaður
Ólafur Guðmundsson Gjaldkeri
Björgvin Ólafsson Ritari
Ari Jóhannsson
Tryggvi M. Þórðarson
Ragnar Róbertsson
Gunnar Hjálmarsson
.
Kristján Skjóldal:
ok takk en hafið þið hjá kk þuft að borga þessi gjöld td útaf svæði tekið út braut og svoleiðis??
SMJ:
--- Quote from: Kristján Stefánsson on January 26, 2013, 01:57:09 ---Átti þetta ísí gjald ekki að vera úr sögunni við stofnun þessa sérsambands ?
--- End quote ---
Þetta ÍSÍ gjald er algjörlega fáránlegt! Það er nóg dýrt að halda við keppnistækjum eins og gengið og verðlag er í dag og er hreint ótrúlegt að forráðamenn klúbba skuli ekki harðmótmæla þessu gjaldi.
Svona aukakostnaður gerir ekkert annað en að snarfækka keppendum í mótorsporti á Íslandi, og megum við alls ekki við því.
Ég vona að menn sjái að sér og fái þetta gjald niðurfellt, þetta á ekki að vera einstaklingsbundið, heldur klúbbatengt.
Hr.Cummins:
--- Quote from: SMJ on January 26, 2013, 17:09:38 ---
--- Quote from: Kristján Stefánsson on January 26, 2013, 01:57:09 ---Átti þetta ísí gjald ekki að vera úr sögunni við stofnun þessa sérsambands ?
--- End quote ---
Þetta ÍSÍ gjald er algjörlega fáránlegt! Það er nóg dýrt að halda við keppnistækjum eins og gengið og verðlag er í dag og er hreint ótrúlegt að forráðamenn klúbba skuli ekki harðmótmæla þessu gjaldi.
Svona aukakostnaður gerir ekkert annað en að snarfækka keppendum í mótorsporti á Íslandi, og megum við alls ekki við því.
Ég vona að menn sjái að sér og fái þetta gjald niðurfellt, þetta á ekki að vera einstaklingsbundið, heldur klúbbatengt.
--- End quote ---
Ég er alveg til í að borga þetta 15.000kr gjald, núna erum við viðurkenndir íþróttamenn í þessari grein...
Gerir það okkur ekki kleift að sækja styrki til byggingar íþróttavalla og fleira svona sem að mætti kannski segja að væri í lagi að rukka inn gjald á ??
Ef að allir guggna og borga ekki gjaldið geta þessir bjánar eflaust fyrrað sig frá því með því að segja að tölur sýni of litla þáttöku / fá-a íþróttamenn, samkvæmt þeirra talningu sem að er auðvitað "borgandi" meðlimir....
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version