Óska eftir starfsmönnum í kvöld og helgarvaktir.
Störf vélamanna í Keiluhöllinni Egilshöll eru laus til umsóknar.
Erum að leita eftir starfsfólki til að vinna við keyrslu á keiluvélum, viðhaldi, viðgerðum og almennum störfum í starfstöð okkar í Keiluhöllinni Egilshöll, Fossaleyni.
Vinnutími
Mánudagar til fimmtudags er frá 16:00 – 24:00
Föstudagar 16:00 – 01:00
Laugardagar og sunnudagar 11:00 – 18:00 og 18:00 – 01:00
Vaktir eru skipulagðar í samstarfi við vélamenn
Starfssvið
Keyrsla, viðhald og þjónusta keiluvéla.
Skýrslugerð vegna viðhalds og þjónustu véla
Skráning lagers og viðhalds inn í tölvu
Þrif og olíuburður brauta
Ýmiss vinna er snýr að verkstæði Keiluhallarinnar í Egilshöll.
Menntunar- og hæfniskröfur
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt.
Góðir samstarfshæfileikar og þjónustulund.
Viðkomandi þarf að hafa reynslu af viðgerðum og hafa almenna þekkingu og skilning á vélbúnaði og rafmótorum.
Umsóknir berist í tölvupóstfangið,
Unnar.magnusson@keiluhollin.is Í umsókninni komi fram upplýsingar um þær hæfniskröfur sem gerðar eru.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Unnar Már í síma 617-1106