Á framhaldsaðalfundi 18 desember 2003 var hjólamönnum fengið það verkefni að fara yfir hjólareglur og
annað sem gæti leitt til fleiri keppenda í hjólaflokkum.
Ég óska hér með eftir tillögum að reglubreytingum eða öðru því sem gæti orðið til að hjóla keppendum og áhorfendum fjölgi.
Ég hef heyrt að menn komi ekki að keppa vegna eftirtalinna atriða:
Slæm aðstaða hjólamanna við brautina, standardhjól eiga ekki möguleika, keppnisgjald of hátt, árgjald KK of hátt,
reglurnar ómögulegar, steypan uppi á braut er svo gróf að maður klárar dekkið í tveimur burnout-um,
kemst aldrei neitt út úr bænum um helgar, alltaf rigning.
Einn keppandi sagði eitthvað á þessa leið. Maður þarf að setja götuslikkann undir, síðan fer maður upp á braut á laugardegi, borgar 5000 kr í keppnisgjald, fer tvær ferðir í keppninni, þarf að bíða fram á mánudag til að komast á dekkjaverkstæðið og láta taka 20.000 króna ónýtan slikkann af og henda honum.
Þessum aðila fannst of dýrt að borga 25 þ. fyrir tvær ferðir, plús tvær umfelganir, og ekki hægt að hjóla á sunnudeginum.
Svona atriði vil ég fá upp á yfirborðið og raunhæfar tillögur sem eru á valdi KK að breyta.
Ef sniglar eru svekktir út í stjórn KK fyrir að fá ekki að halda hjólamílu á brautinni vil ég fá að vita af því og mun athuga þann möguleika að þeir fái að halda keppni þar ef áhugi er, ef það gæti orðið til þess að sniglar mæti betur á keppnir KK, en endanleg ákvörðun er í höndum stjórnar KK.
Tillögur á að senda á mig fyrir árslok 2003.
stei@bakkar.isSíðan munu þeir hjólamenn KK sem voru gildir meðlimir á aðalfundi 15 nóvember 2003, og stjórn KK taka ákvörðun um hvort/hvaða breytingar verða. Ætlunin er að ljúka þessu eigi síðar en 15 janúar 2004.
Hugmyndir stjórnar KK um breytingar er að finna hér annars staðar
Ég vona að málefnanleg umræða verði um þetta hér, einnig er hægt að senda spurningar varðandi núverandi reglur og annað beint á mig og mun ég svara þeim eftir bestu getu.
Þetta á eingöngu við kvartmílu og kemur sandspyrnu ekkert við.
Steingrímur Ásgrímsson
stei@bakkar.is