Author Topic: Mustang klúbburinn - rúntur á næsta fimmtudag - 12. júlí 2012  (Read 3589 times)

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
 :excited:

Á fimmtudaginn ætla félagar í Mustang klúbbnum að rúnta um Reykjanes.   :spol:

Við hittumst hjá Hilmari að Rauðhellu 8, Hafnarfirði (rétt áður en komið er að Álverinu).
Ekið verður þaðan kl. 18:30 um Reykjanesbraut til Reykjanesbæjar (RNB).

Beygt verður af Reykjanesbraut við fyrstu mislægu gatnamótin að RNB, á Stapanum. Þaðan munu heimamenn leiða hópinn um Innri-Njarðvík sem er í suðurhluta RNB. Stoppað verður m.a. við Víkingaheima. Það verður síðan ekið um Ytri-Njarðvík, um Keflavík og áleiðis í Garðinn. Stoppað verður við Garðskagavita þar sem svæðið verður skoðað, bílarnir myndaðir og slegið upp pulsupartýi þar sem Mustang-klúbburinn býður upp á grillaðar pulsur/pylsur en reyndar ekki drykki það verða þátttakendur að sjá um sjálfir. Að því loknu verður ekið til Sandgerðis og síðan á Hvalsnes, um Ósabotnaleið að Hafnarvegi. Beygt verður norður Hafnarveg áleiðis til RNB og að Patterson svæði þar sem verður stoppað aftur, villihestarnir teknir til kostanna og myndaðir! Síðan aka menn til síns heima.

Allir velkomnir að rúnta með okkur!   :smt058 :smt057

Offline pal

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 147
  • Mustang
    • View Profile
Mætti maður slæðast með gömlum Pontiac höfðingja ??   Er farið að langa til að taka góðan rúnt  \:D/
Pálmi Alfreðsson
 
Ford Mustang 1979

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Ekki málið - allir velkomnir!

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Það stefnir í veðurblíðu á morgun - minni á Reykjanesrúntinn

Offline Daníel Már

  • Pre staged
  • ****
  • Posts: 431
  • Turbooo
    • View Profile
Ég á nú örugglega eftir að keyra framhjá og sjá ykkur þar sem skúrinn minn er rétt hjá Hilmari! :) Verður flottur rúntur hjá ykkur strákar ;)
Daníel Már Alfredsson

Evo 3
60ft 1.660
1/8 7.52 @ 92mph
1/4 11.72 @ 115mph

Civic Type R
60ft. 1.993
1/8. 8.311 @ 86.37
1/4. 12.861 @ 109mph

Evo 9
60ft. 1.587
1/8. 7.118 @ 95.75mph
1/4. 10.968 @ 133.54mph

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Ég á nú örugglega eftir að keyra framhjá og sjá ykkur þar sem skúrinn minn er rétt hjá Hilmari! :) Verður flottur rúntur hjá ykkur strákar ;)

Kemur þú ekki bara á rúntinn með okkur - allir velkomnir!

Offline pal

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 147
  • Mustang
    • View Profile
Vill þakka Mustangklúbbnum og öllum þeim sem á rúntinum voru, kærlega fyrir flott kvöld  \:D/
Pálmi Alfreðsson
 
Ford Mustang 1979

Offline motorstilling

  • In the pit
  • **
  • Posts: 58
    • View Profile
Þakka kærlega fyrir mig og mína, kvöldið í kvöld var góð skemmtun  =D> Takk takk  =D>  =D>  =D>  =D>  =D>
Jón Borgar Loftsson

Offline HimmiMustang

  • In the pit
  • **
  • Posts: 92
    • View Profile
Takk kærlega fyrir mig :) besti rúntur hingað til :D

kv Hilmar
Hilmar Andri Hilmarsson
Ford Mustang GT 2006
http://www.flickr.com/photos/90608348@N02/
773-8787

Offline procharger

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 31
    • View Profile
Takk fyrir mig þótt ég hafi bara tekið hálfan rúnt :) þá tek ég heilan næst :)