Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Boss 429 til sölu á Ebay
Rampant:
Verðið er nokkuð hátt :-(
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/1969-Ford-Mustang-Boss-429-Very-RARE-/300643596855?pt=US_Cars_Trucks&hash=item45ffc13a37
Yellow:
Enda helvíti flottur Bíll.
Og hefur farið mikil vinna í hann 8-)
Þórður Ó Traustason:
Sæll Ægir,selur þú ekki bara hjólhýsið og kaupir þennann.Það er kominn tími á að þú fáir þér alvöru bíl.
GunniCamaro:
Þórður Óli, þú ættir nú að vita betur að vera ekki að ota að mönnum svona rándýrum og misheppnuðum Mustang.
Ég las það í bílablaði að þessum Boss mótor hafi verið bókstaflega troðið ofan í Mustang til að stærri boddýinn af Ford fengi að keppa í NASCAR en hafi svo verið hálf misheppnaður.
En til að fá að keppa í ýmsum keppnum þurfti bílaframleiðendur að framleiða og selja visst mörg eintök á almennum markaði, svokallaðir "homologation specials" t. d. fyrstu þrjár árg. af Z28 Camaro, Plymouth Roadrunner Superbird, Plymouth Roadrunner Superbird o. fl.
En þar sem stærri boddýinn af Ford, sem voru að keppa í NASCAR, voru ekki talinn söluleg á almennum markaði með þessum Boss mótor var víst ákveðið að troða mótornum ofan í Mustanginn til að heimfæra hina í keppni en hann keppti aldrei í NASCAR þannig að hann var eiginlega misnotaður til að stóru bræður hans fengu að keppa enda vitum við Þórður Óli það að gömlu Mustangarnir voru aldrei góðir kappakstursbílar, sérstaklega þegar búið var að troða bigblock ofan í þá.
En þessi Mustang er auðvitað söguleg heimild og búið að skapast goðsögn um þessa Boss Mustanga enda verðið á þeim í samræmi við það ef menn vilja borga svimandi upphæð fyrir bíl sem er gaman að horfa á.
Rampant:
--- Quote from: Þórður Ó Traustason on January 02, 2012, 23:11:30 ---Sæll Ægir,selur þú ekki bara hjólhýsið og kaupir þennann.Það er kominn tími á að þú fáir þér alvöru bíl.
--- End quote ---
Ég er ansi hræddur um að hjólhýsið myndi enungis duga fyrir einni felgu á svona bíl Óli minn. :cry:
Boss 429 hefur altaf verið minn drauma bíll. Með áherslu á "drauma", því mér þykir svona verð fáránleg. Það er hægt að kaupa nýjan 2012 Boss fyrir miklu minni pening og það er að auki miklu betri bíll. Ég man altaf eftir því að ég sá BOSS 429 auglýstan til sölu fyrir $12.000 þegar ég fyrst flutti til Bandaríkjanna. Mér þótti það allt of dýrt þá, en hef séð eftir því að hafa ekki skoðað málið betur þá. :???:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version