Author Topic: //////// Fiat Coupe 5cyl Turbo - skoða öll skipti!  (Read 1784 times)

Offline skúlimx

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 5
    • View Profile
//////// Fiat Coupe 5cyl Turbo - skoða öll skipti!
« on: August 17, 2011, 15:39:53 »
Er bara að kanna áhugann og hvað ég get fengið í skiptum.

Fiat Coupe 5cyl Turbo, sá eini á landinu sem er á götunni.

Árgerð 99/00
Keyrður aðeins 75þ km
Skoðaður 2012

Stock tölur: 221hp og 1300kg. 6.0 sek 0-100km/h. Þetta var hraðskreiðasti framhjóladrifni bíll í heimi sem var fjöldaframleiddur á sínum tíma.

Staðalbúnaður:
-Bíllinn er allur leðraður að innan eins og hann leggur sig
-Listi á hurðum og mælaborði sem er í sama lit og bíllinn og stendur Pininfarina í miðjunni á honum, en Pininfarina sá um hönnun á bílnum.
-Garrett tb28 túrbína
-Brembo bremsur....svínvirka!!!
-Mac Pherson fjöðrunarkerfi
-Torsen lsd læsing í framdrifi
-Rafmagn í rúðum og speglum
-Air condition

Aukabúnaður:
-K&N sía og cold air intake
-Forge blow off
-Ég sérútbjó boost controller system í þennan bíl með leiðbeiningum frá manni sem er búinn að gera við túrbínur í 30 ár. Þú getur stillt boostið á meðan þú keyrir inní bíl.
-Auto Gauge boost mælir
-Mælahattur fyrir 2 mæla í gluggapóst
-3" downpipe og opið púst án hvarfa
-16 stk Hjámiðjuboltar svo það sé hægt að setja 4x100 felgur undir hann
-Alpine 4x50w spilari með mp3/ipod og mjög góðir hátalarar
-30mm bolt on spacerar að framan sem kostuðu skildinginn
-Bláar H1 perur í aðal og kösturum
-Surtuð afturljós
-Tölvukubbur með mappi

Felgur:
-Flottar 17" felgur á splunkunýjum Sailun Atrezzo Z 205/40R17
-2 stk orginal 16" felgur á góðum Bridgestone Potenza dekkjum
-2 stk 15" Fiat felgur sem þurfa að vera að aftan því þær komast ekki undir að framan útaf stærðinni á bremsudælunum

Viðhald:
Nýjar hjólalegur að aftan
Nýjir stýrisendar
Nýjir bremsuklossar að framan frá Brembo
Ný olía á mótor, drifi og gírkassa, ég hef hingað til verið að skipta um olíu á 2þ km fresti (vinn á verkstæði)
Nýr gírkassi (olíutappinn datt úr á gamla og það var keyptur splunkunýr kassi)
Ný kúpling sem var sett í á sama tíma og gírkassinn fór í
Ný tímareim, strekkjarar og vatnsdæla
Nýjar bremsudælur framan, diskar og klossar

Ástand:
Eina sem er að hrjá bílinn er að túrbínan er farin að taka í gegnum sig olíu og upptekningarsettið er á leiðinni til landsins. Bíllinn virkar eðlilega og allt það en hann reykir aðeins. Ég er nýbúinn að þjöppumæla hann og það er allt eðlilegt þar.

Eyðsla:
Hann eyðir ca 11 lítrum innanbæjar, mjög spartneytinn m.v. power. Ég er að keyra hann á 98 oktan á 18-20psi annars bara 95 oktan á venjulegum blæstri (14psi)


Aðrar upplýsingar:

Tók 14.2@101mph með 3.0 sek í 60ft uppá mílu. Var á handónýtum dekkjum þannig hann hreyfðist ekki í startinu. Ég hef tekið 60ft á 2.1 sek á ónýtum vetrardekkjum, en það var áður en ég tjúnaði hann. Ef hann væri á slikkum færi hann 60ft á ca 1.8-2.0 sek og myndi tíminn gjörbreytast. Þessi bíll er að virka rosalega og þvílíkt gaman að keyra þetta.

Þessi bíll hefur aldrei lent í tjóni!

Þetta er vangefinn bíll í alla staði og fær athygli hvert sem hann fer.

Ég er eigandi #3 frá upphafi

Verð:
Ásett 1650, er ekki fastur á þessu verði ef mér lýst vel á bílinn

Ég vill svo bara fá tilboð í PM eða fogeti@gmail.com Ég skoða skipti á allskonar bílum, þá er ofarlega á lista pickupar, sportbílar og bmw/benz/audi.

Video:
Fiat Coupe 20v Turbo exhaust

Myndir:










Offline skúlimx

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 5
    • View Profile
Re: //////// Fiat Coupe 5cyl Turbo - skoða öll skipti!
« Reply #1 on: August 19, 2011, 14:35:40 »
Skoða ýmislegt til skiptanna, en þá erum við að tala um farartæki, ekki uppstoppuð dýr eða álíka.

Offline skúlimx

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 5
    • View Profile
Re: //////// Fiat Coupe 5cyl Turbo - skoða öll skipti!
« Reply #2 on: August 23, 2011, 11:59:15 »
ttt

Offline skúlimx

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 5
    • View Profile
Re: //////// Fiat Coupe 5cyl Turbo - skoða öll skipti!
« Reply #3 on: August 25, 2011, 11:30:48 »
Er til í að gefa mjööög góðan stgr. afslátt