Kvartmílan > Almennt Spjall
Rafgeymasalan Hafnarfirði-ánægður viðskiptavinur :)
Nonni:
Ef mig vantar geymi í eitthvað þá hef ég skipt við Rafgeymasöluna og hef getað treyst því að þeir geymar væru í lagi. Nú lenti ég í því að geymir sem ég keypti frá þeim fyrir rúmu ári síðan tæmdist það svakalega (hlýtur að vera vegna útleiðslu) að ekkert hleðslutæki réð við að lífga hann við (var meira að segja með hleðslutæki sem er gert til að lífga dauða geyma við).
Ég hafði samband við Rafgeymasöluna og þeir báðu mig að koma með geyminn. Hann mældist 6 V þannig að ekki leit það nú vel út. Þeir báðu mig um að skilja hann eftir og koma daginn eftir sem ég gerði. Þeir voru búnir að lífga greyið við og samkvæmt mælitækjum hjá þeim og mér þá er eins góður og nýr. Þeir tóku svo ekkert fyrir þetta.
Ég get því ekki annað en verið áfram hæstánægður með þeirra vöru og þjónustu og mun halda áfram að skipta við þá svo og vísa öllum á þá sem vantar geymi =D>
1965 Chevy II:
Þeir eru flottir, við fáum líka max afslátt gegn framvísun félagskírteinis.
Þeir eru með flotta þurrgeyma líka, sama og OPTIMA rafgeymar.
Kiddi:
Jamm, tek undir þetta... Gott viðmót sem mætir manni á þessum stað :!:
Slökkvitæki ehf:
Sammála góð, þjónusta og gott verð svo er líka svo vinalegt að versla við svona minni fyrirtæki þar sem maður fær persónulega þjónustu =D>
íbbiM:
gott að vita af þessu. er með geymir úr N1 sem hefur aldrei virkað almennilega
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version