Kvartmílan > Ford
Fréttabréf Mustang klúbbsins
(1/1)
Mustang Klúbburinn:
Hittingur / Rúntur 5. maí 2011
Við ætlum að hittast hjá N1 að Bíldshöfða á fimmtudögum í sumar. Fyrsti hittingurinn er á fimmtudaginn 5. maí kl. 20:00, en við hefjum rúntinn kl. 20:45. Hvetjum alla til að mæta. Dagskráin er komin á vefinn.
Mustang sýningin 16. Apríl 2011
Þá er hinni árlegu Mustang sýningu Brimborgar og Íslenska Mustang klúbbsins lokið, en hún heppnaðist að vonum framar, þrátt fyrir leiðinda veður.
Haldin var kosning um fallegasta bílinn, þar sem sýnigargestir kusu um. Þá var og getraun þar sem vinnugur var akstursferð á kvartmílubrautinni með Ingimundi á 2006 Shelby GT500. Bílarnir sem hlutu kosningu um fallegasta bíl sýningar eru:
1. 1969 Mustang Mach1, Eigandi: Jón Atli Eðvarðsson
2. 2006 Saleen S281, Eigandi: Hilmar Jacobsen
3. jafnir í 3. til 5. sæti:
2005 Mustang GT Fastback, Eigandi: Birgir Þór Sigurðsson
1969 Mustang BOSS 429 Fastback, Eigandi: Björn Jónsson
2007 Shelby GT-500 Fastback, Eigandi: Hörður Guðlaugsson
Vinningshafar í getrauninni voru:
Malín Brand
Ingimar Arndal Árnason
Sævar Hafsteinsson
Þórður Benediktsson
Kveðja Mustang Klúbburinn.
Navigation
[0] Message Index
Go to full version