Er að athuga áhuga á Econolinernum mínum.
Þetta er 1988 árgerð af stutta E150 bílnum, 300CID 6cyl línuvél, togar gríðarlega vel en eyðir eftir því. Hann er sjálfskiptur og var breytt fyrir 35-36" held ég, 32" undir honum. Ford 8.8 hásing að aftan og ég er nokkuð viss um að framhásingin sé undan Bronco 79 en hann er með NP205 millikassa. Það er U-bekkur aftan í honum með innbyggðu bassaboxi og í honum er líka geislaspilari, þéttir og magnari sem selst með. Skráður 6 manna en ég man ekki betur en að einhvertíman vorum við 14 í honum:)
Endilega hafið samband ef áhugi er fyrir kvikindinu.
Gunnar 8696767