Kvartmílan > Aðstoð

Dekkjastærð fyrir Nissan Almera 98 módel?

(1/2) > >>

bjartman:
Sælir,

Er að pínu að spá, var að fjárfesta í Nissan Almeru 98 módel,

Dekkjastærðin sem er undir núna er 185/65/14.

Gæti ég sett dekk undir hana að stærð 205/75/14 ?

kveðja

Stefán Már Jóhannsson:
Það ætti nú alveg að komast undir, en þú verður að athuga það að hraðamælirinn verður ekki réttur eftir það. Á 100 kmh myndi mælirinn sýna 90, samkvæmt þessu. http://www.1010tires.com/tiresizecalculator.asp  Það er nú ekkert til að hafa stórar áhyggjur af samt sem áður.

KiddiJeep:
Það þarf nú ekki að vera að hraðamælirinn versni, ég var að setja 195-eitthvað-15 tommu dekk undir Corollu sem var á 14" felgum. Hraðamælirinn varð réttur við það, samkvæmt GPS

Ramcharger:
Ætli það komi nú ekki til með að draga dálýtið niður í Merinni við að fara á þessa stærð :-k

Nonni:
Þetta er svolítið mikil stækkun, dekkið stækkar um 2,5" fer úr ca 23,5" í 26" (helmingur hvoru megin, 1,25" eða 3,17 cm).  Hann mun þá líka fúnkera eins og hann sé kominn á 10% hærri hlutföll (og viðbragðið minnka eftir því).

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version