Kvartmílan > Muscle Car deildin og rúnturinn.

KK-Muscle Cars

<< < (3/4) > >>

Gunnar M Ólafsson:

--- Quote from: kcomet on January 23, 2011, 12:15:52 ---Til hamingju með þetta k.k. menn..  það verður gaman í sumar, á örugglega eftir að taka rúntinn með ykkur..

                                               kv.k.comet

--- End quote ---

Velkomin með kalinn :D
Já þetta leggst mjög vel í okkur vonumst til að sem flestir komi með og gerist félagar líka 8-)

SPRSNK:

--- Quote from: Bilabjossi on January 23, 2011, 00:37:11 ---þetta virkar eins og gott kvöld en hvað voru margir 90-2011 mustangar í þessum hópi ??? :lol:

--- End quote ---

Erum við ekki velkomnir?

Moli:

--- Quote from: SPRSNK on January 23, 2011, 12:49:43 ---
--- Quote from: Bilabjossi on January 23, 2011, 00:37:11 ---þetta virkar eins og gott kvöld en hvað voru margir 90-2011 mustangar í þessum hópi ??? :lol:

--- End quote ---

Erum við ekki velkomnir?

--- End quote ---

Að sjálfsögðu, allir V8 frá Ameríkunni.  8-)

Racer:
það voru félagar frá öllum helstu hópum þarna. Ford , Pontiac , Chevy , Mopar og fleiri en einn af hvorum hóp sem mættu.

þetta á eftir að verða skemmtilegur félagsskapur

1965 Chevy II:
Sælir félagar,

Þetta var fínn  fundur sem lofar góðu með framhaldið. Ákveðið var að þetta  yrði fyrir alla ameríska v8 bíla gamla og nýja. Nafn deildarinnar verður „ Muscle Car“  til heiðurs grasrótinni sem stofnaði  KK.
Rætt var um tengja sérstaklega þessa deild við þrjár uppákomur KK þ.e. Muscle-car-daginn bílasýningu KK   17. Júní  i Hafnarfirði og svo t.d kvikmyndasýningu í einhverju bíóhúsana með rúnti á eftir.

Tilgangur deildarinnar er að hittast og hafa gaman af bílunum og góðum félagsskap, ásamt því að efla starfssemi KK. Engin fastákveðin dagsskrá var gerð, fólk vill hafa þetta  einfalt og sveigjanlegt, nota góðviðrisdaga  og  góðar hugmyndir sem fram kunna að koma.
Beinagrind af tilhögun deildarinnar er samt orðin mótuð en hún er sú að hittast a.m.k  tvisvar í mánuði  á sumrin og þá helst  á laugardegi  /kvöldi og að deildin hittist á almennum félagsfundi einu sinni  í mánuði yfir vetrartíman. Örugglega  á ýmislegt samt eftir að breytast eftir því sem starfsemin þróast.

Til að gerast meðlimur deildarinnar þarf að gerast félagi í KK fyrir 4000kr (7000kr silfur) eða (15.000kr Gull) bara eftir hvað hentar hverjum og einum . Óhætt  er að fullyrða að aðstaða KK bíður uppá  skemmtilega möguleika sem ekki eru til annars staðar fyrir svona deild.
Ákveðið var að forvígismenn deildarinnar fyrsta árið yrðu Sigurjón Andersen,  Magnús Sigurðsson og Gunnar M. Ólafsson.
Þökkum sérstaklega þeim sem mættu á stofnfundinn  og bjóðum  væntanlega félaga innilega velkomna.

Stjórn KK.

PS. Næsti hittingur „ Muscle Car“  verður auglýstur á spjallinu undir „ Muscle car og rúnturinn“.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version