Sælir félagar,
Þetta var fínn fundur sem lofar góðu með framhaldið. Ákveðið var að þetta yrði fyrir alla ameríska v8 bíla gamla og nýja. Nafn deildarinnar verður „ Muscle Car“ til heiðurs grasrótinni sem stofnaði KK.
Rætt var um tengja sérstaklega þessa deild við þrjár uppákomur KK þ.e. Muscle-car-daginn bílasýningu KK 17. Júní i Hafnarfirði og svo t.d kvikmyndasýningu í einhverju bíóhúsana með rúnti á eftir.
Tilgangur deildarinnar er að hittast og hafa gaman af bílunum og góðum félagsskap, ásamt því að efla starfssemi KK. Engin fastákveðin dagsskrá var gerð, fólk vill hafa þetta einfalt og sveigjanlegt, nota góðviðrisdaga og góðar hugmyndir sem fram kunna að koma.
Beinagrind af tilhögun deildarinnar er samt orðin mótuð en hún er sú að hittast a.m.k tvisvar í mánuði á sumrin og þá helst á laugardegi /kvöldi og að deildin hittist á almennum félagsfundi einu sinni í mánuði yfir vetrartíman. Örugglega á ýmislegt samt eftir að breytast eftir því sem starfsemin þróast.
Til að gerast meðlimur deildarinnar þarf að gerast félagi í KK fyrir 4000kr (7000kr silfur) eða (15.000kr Gull) bara eftir hvað hentar hverjum og einum . Óhætt er að fullyrða að aðstaða KK bíður uppá skemmtilega möguleika sem ekki eru til annars staðar fyrir svona deild.
Ákveðið var að forvígismenn deildarinnar fyrsta árið yrðu Sigurjón Andersen, Magnús Sigurðsson og Gunnar M. Ólafsson.
Þökkum sérstaklega þeim sem mættu á stofnfundinn og bjóðum væntanlega félaga innilega velkomna.
Stjórn KK.
PS. Næsti hittingur „ Muscle Car“ verður auglýstur á spjallinu undir „ Muscle car og rúnturinn“.