Ég er nú ekki viss um að menn vilji auglýsa hvar gullin þeirra liggja og bíða uppgerðar. Ég var að klára uppgerð á einum og er að fara að taka hitt gullið mitt(gull í mínum augum, gamall Blazer K5) inn í hlýjuna og ætla ekkert að auglýsa hvar hann er svo einhverjir óvandaðir (sem er því miður nóg af) fari ekki að hirða neitt úr honum.
Það væri frekar að mönnum væri sama að upplýsa um þá sem eru á beit og eiga sér ekki viðreisnar von.