Kvartmílan > Muscle Car deildin og rúnturinn.
"Musclecar Deildin"
1965 Chevy II:
Það er verið að tala um að hafa nýrri muscle cars líka, Dodge Viper V10 er klárlega einn af þeim.
kcomet:
Var að vonast til að þetta væri fyrir gömlu bílana. Ekki ætla ég að fara setja út á þá nýu , mjög flottir bílar.
Nostalgian er í kringum þá gömlu, sama hvað hver segir.. svo ættum við að kalla þetta KAGGA bíla eða eitthvað annað,ekki Mc bíla. Fæstir þessir rúntara eru MUSCLE cars. Svo er spurningin hvað er gamall bíll, eða ekki gamall bíll. :roll:
Svo er kannske hægt að tvískipta þessu eitthvð...Annars var þetta bara mín hugleiðing
kv. k.comet
Moli:
Er ekki einhver með góða hugmynd að logoi fyrir deildina? Það væri gaman að fá einhverja snillinga í Photoshop til að koma með hugmyndir og kynna á fundinum? 8-)
AlexanderH:
En til dæmis Malibuinn minn og Councorsinn hjá Kidda hljóta nú að detta falla undir þennan hóp?
Gunnar M Ólafsson:
--- Quote from: AlexanderH on February 14, 2011, 03:55:10 ---En til dæmis Malibuinn minn og Councorsinn hjá Kidda hljóta nú að detta falla undir þennan hóp?
--- End quote ---
"Sælir félagar,
Þetta var fínn fundur sem lofar góðu með framhaldið. Ákveðið var að þetta yrði fyrir alla ameríska v8 bíla gamla og nýja. Nafn deildarinnar verður „ Muscle Car“ til heiðurs grasrótinni sem stofnaði KK.
Rætt var um tengja sérstaklega þessa deild við þrjár uppákomur KK þ.e. Muscle-car-daginn bílasýningu KK 17. Júní i Hafnarfirði og svo t.d kvikmyndasýningu í einhverju bíóhúsana með rúnti á eftir.
Tilgangur deildarinnar er að hittast og hafa gaman af bílunum og góðum félagsskap, ásamt því að efla starfssemi KK. Engin fastákveðin dagsskrá var gerð, fólk vill hafa þetta einfalt og sveigjanlegt, nota góðviðrisdaga og góðar hugmyndir sem fram kunna að koma.
Beinagrind af tilhögun deildarinnar er samt orðin mótuð en hún er sú að hittast a.m.k tvisvar í mánuði á sumrin og þá helst á laugardegi /kvöldi og að deildin hittist á almennum félagsfundi einu sinni í mánuði yfir vetrartíman. Örugglega á ýmislegt samt eftir að breytast eftir því sem starfsemin þróast.
Til að gerast meðlimur deildarinnar þarf að gerast félagi í KK fyrir 4000kr (7000kr silfur) eða (15.000kr Gull) bara eftir hvað hentar hverjum og einum . Óhætt er að fullyrða að aðstaða KK bíður uppá skemmtilega möguleika sem ekki eru til annars staðar fyrir svona deild.
Ákveðið var að forvígismenn deildarinnar fyrsta árið yrðu Sigurjón Andersen, Magnús Sigurðsson og Gunnar M. Ólafsson.
Þökkum sérstaklega þeim sem mættu á stofnfundinn og bjóðum væntanlega félaga innilega velkomna.
Stjórn KK."
PS. Næsti hittingur „ Muscle Car“ verður auglýstur á spjallinu undir „ Muscle car og rúnturinn“.
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version