Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Road Runner
Moli:
--- Quote from: Diesel Power on October 21, 2010, 22:12:39 ---En "69 Chargerinn í bakgrunninum á efstu myndinni er hann enn til??
--- End quote ---
Já, hann er í geymslum Fornbílaklúbbsins og búinn að vera þar undanfarin ár.
Camaro68:
Fyrst þið eruð að tala um Road Runner veit einhver hvað varð um Road Runnerinn sem Gunni átti hérna um 1975 hann var gulur með RR merkinu á húddinu.Strákur sem átti heima rétt hjá Hrafnistu í hafnarfirði
S.Andersen:
Sæll Maggi.
Bíllinn sem Gunni átti var ekki Roadrunner.
Það var Dodge Super Bee 383 1971. Núna í eigu Sigurðar Ágústssonar á Akureyri (Siggi Super) og er í uppgerð.
Kv.Sigurjón Andersen.
Camaro68:
Sæll Sigurjón
Það er rétt hann var Super Bee, er hann eins og hann var eða eitthvað breyttur.Takk fyrir upplýsingarnar Sigurjón
Kveðja Magnús Hjörleifsson
Dodge:
Svona leit hann út daginn áður en hann fór inn í uppgerð, sem ég held að hafi verið ca 85.
Núna er hann sundurrifinn og lakklaus í veltibúkka inní skúr hjá Sigga, en hann allavega liggur ekkert undir skemmdum
og ég hef trú á að hann klári þetta á endanum.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version