Kvartmílan > Almennt Spjall
Lokahóf 2010
(1/1)
smásonehf:
Lokahóf Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA fer fram á Hótel Selfoss þann 30. október næstkomandi.
Róbert Agnarsson tekur á móti skráningu í síma: 894-1518 og er miðaverð 5.500kr. Innifalið í því er þriggja rétta máltíð og ball.
Ganga skal frá greiðslunni inná reikning
1169-05-600 og kt:160676-4699
Matseðillinn er nú ekki af verri endanum, en hann hljómar uppá.
Forréttur:
Humarsúpa með fín söxuðum skelfisk
Aðalréttur:
Glóðasteiktur lambahryggsvöðvi með kartöfluturni, árstíða grænmeti og villijurtasósu.
Eftirréttur:
Frönsk súkkulaðiterta með skógarberjum.
Hvetjum við alla keppendur og aðstoðarmenn sem og vini og vandamenn til að mæta og loka þessu ári með stæl.
Húsið opnar kl.20:00.
Racer:
hverjir spila á þessu svokallaða balli?
annars skipti það mig litlu máli þar sem ég verð í góðra manna hópi erlendis á kvartmílukeppni.
svo er að vona að kvartmíluklúbburinn heldur auka lokahóf.
1965 Chevy II:
Sæll Davíð,
Jú við verðum að sjálfsögðu með lokahóf/árshátíð,dagsetningin er 20 nóvember,ég er að klára að ganga frá því máli og kem með tilkynningu fyrir helgi :D
smásonehf:
Smá breyting á mætingu.
Húsið opnar með "Happy hours" milli kl.17:00-19:00 og hefst borðhald kl.19:00.
Takk fyrir.
Navigation
[0] Message Index
Go to full version