Gul Barracuda þaut fram hjá mér áðan á Höfðabakkabrúnni, með númerið R-152 (gamlar plötur). Góð saga, ég veit.
Ég er með aðgang að ökutækjaskrá og ég sé að bíllinn er '72 árg, fluttur inn 2007.
Svo sem lítill tilgangur með þessum þræði, ég er bara búinn að vera að furða mig á því að ég hef aldrei séð eða heyrt neitt af þessari Cudu áður.
Hún er gul með mjóu svörtu strípunum á hliðunum og svörtum spoiler. Fallegur bíll sýndist mér (á ferð allavega).
Er ég bara ekki að fylgjast með?