Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur

Hótel Selfoss sandspyrnan - SKRÁNING

(1/1)

Bílaklúbbur Akureyrar:
Við höfum nú opnað fyrir aukaskráningu í lokaumferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram á Hrauni við Ölfus laugardaginn 25. september. Þær skráningar sem komnar voru standa óbreyttar nema keppendur hafi samband og taki annað fram. Skráning fer annars fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og þessari aukaskráningu lýkur mánudaginn 20. september kl. 23:59.-

Það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb.

Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér: http://ba.is/page/keppnisreglur

F.h. Spyrnudeildar BA

Garðar Garðarsson
gg@ba.is

Navigation

[0] Message Index

Go to full version