Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur

Toyo Tires 1/8 míla Laugardaginn 18 sept - skráning

(1/3) > >>

Jón Bjarni:
Sælir Félagar Góðir

Bílabúð benna og Skeljungur bjóða upp á áttundu keppni sumarsins.
Þetta er 1/8 míla, hún fer fram Laugardaginn 18. september

ATH þetta eru þeir flokkar sem verða keyrðir í þessari keppni

Þetta er bikarkeppni og  bílar verða að vera götuskráðir og með almenna skoðun,
einnig þá verða dekk að vera DOT merkt,
nema FWD bílar þeir mega vera á hvaða dekkjum sem er.
ATH það eru ekki neinar takmarkanir á bensíni í þessari keppni.

ATH, allir flokkar verða keyrðir á pro tree!!

Bílaflokkar.
Bílar með drifi á einum öxli keppa í 4 flokkum:
4 sílendra
6 sílendra
8+ sílendra yngra en 1985
8+ sílendra eldra en 1985

Fjórhóladrifsbílar keppa í einum flokk:
4x4 flokkur

Jeppar, trukkar og pikkupar keppa í einum flokk:
Jeppaflokkur

OF – Opinn flokkur keyrður Heads up, ræst á jöfnu – allt leyft


Hjól
Racerar:
799 cc og minna óbreytt
799 cc og minna breytt
800 cc og stærra óbreytt
800 cc og stærra breytt
Hippar

Keppnisfyrirkomulag.

Keppt verður eftir fyrirkomulagi sem kallast Second chance.  Þetta kerfi er þannig upp sett að þú þarft að tapa tvisvar til að detta út. 
Skýringarmynd er hér:
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=51796.0
 
ATH: það er einungis keyrt 1 run í hverri umferð,  Þannig að ef þú klikkar í ferðinni þá getur það kostað þig sigurinn.
Keyrt verður á protree.

Dagskrá:

Dagskrá:

9:30 – 11:00   Mæting Keppanda
11:00        Pittur lokar
11:15        Fundur með keppendum
11:25 – 11:55  Æfingarferðir
11:55         Tímatökur hefjast
13:20         Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45  Hádegishlé
13:45         Keppendur Mættir við sín tæki
14:00         Keppni Hefst
16:25         Keppni lýkur – Kærufrestur Hefst
16:55         Kærufrestur liðinn
17:00         Verðlaunaafhenting á pallinum

Til að taka þátt þarftu að hafa:

Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:

jonbjarni@kvartmila.is

Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM

Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni

SKRÁNINGU LÝKUR fimmtudagskvöldið 16. ágúst Á SLAGINU 23:59

þegar skráningu er lokið verður EKKI hægt að skipta um flokk nema að flokkurinn innihaldi aðeins einn keppanda.

Þeir sem eru ekki vissir í hvaða flokk þeir ætla að skrá sig í:

Það er leyfilegt að skrá sig án þess að tilgreina flokk.
Þá getur fólk mætt á æfinguna og ákveðið hvaða flokk það á heima í.
Það fær samt einginn að keyra á þessair æfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld

Dagskrá keppninar verður birt síðar
Mæting er á milli 9:30 og 11.
Á slaginu 11 verður hliðinu lokað og þeir sem mæta eftir það verða ekki með.

ATH til keppanda.
Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!

Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370

Æfing fyrir keppnina fer fram Fimmtudagskvöldið 16. september
Hún verður keyrð frá 20:00 til 22:00
 
Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir Kl: 00:00 föstudaginn 20. ágúst
ATH.  Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geta ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma. 

Enginn fer niðrí pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd

Einnig ætla ég að biðja sem flesta að reyna að millifæra keppnisgjöldin

Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199

Keppnisgjaldið er 5000kr

KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA


Keppendur undir 18 ára aldri þurfa skriflegt leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum

Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni

Lindemann:
eru engin stærðar/þyngdartakmörk í jeppaflokk??

Jón Bjarni:
Vegna slakrar skráningar í mílunna er opið fyrir skráningar til 22:00 í kvöld, föstudaginn 17.09.10.

ég hvet sem flesta til að skrá sig til að við getum lokað sumrinu með stæl!

Buzy84:

--- Quote from: Jón Bjarni on September 17, 2010, 00:27:23 ---Vegna slakrar skráningar í mílunna er opið fyrir skráningar til 22:00 í kvöld, föstudaginn 17.09.10.

ég hvet sem flesta til að skrá sig til að við getum lokað sumrinu með stæl!

--- End quote ---

Ég er búin að bætast við :)

Jón Bjarni:
keppendalistinn

Flokkur   Nafn    Tæki   Merking
4cyl   Sigurjón M. Jóhannsson    Ford Sierra RS Cosworth    4/5
4cyl   Ólafur Rúnar Þórhallsson   Opel OPC   4/6
         
4X4   Gunnar Yngvi Rúnarsson   Subaru Impreza GT WRX   X/9
         
8cyl   Jón Borgar Loftsson   Mazda RX8 LSX   8/9
8cyl   Kjartan Kjartansson   Ford Mustang LX 1986   8/10
8cyl   Kjartan Hansson   2005 Mustang GT   8/11
         
MC   Friðrik Daníelsson   Pontiac Trans Am   MC/1
MC   Harry Herlufsen   Chevrolet Camaro 1979   MC/9
MC   Árni S. Magnússon   68 Camaro   MC/10
MC   Rúdólf Jóhannsson   Pontiac   MC/11
         
OF   Stefán Kristjánsson   dragster   OF/9
OF   Leifur Rósenberg   Pinto   OF/1
OF   Árni Már Kjartansson   Camaro RS   OF/8
OF   Ingólfur Arnarsson   Konan   OF/7
         
800+   Þórir Hálfdánarson   Susuki Hayabusa 2008   H/9
800+   Þórður Hilmarsson   Hayabusa   H/7
         
800+ breytt   Ólafur F Harðarson   Yamaha R1   J/5

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version