Kvartmílan > Chrysler
Andlát - Herbert Hjörleifsson
andi:
Já Hebbi var feikilega fróður um bíla og það var alltaf gaman að spjalla við hann, ég var svo heppin að þekkja hann frá því að við vorum 13 ára. Ég á eftir að sakna hans, og vil votta Jónínu og dætrum mína dýpstu samúð.
Kv. Jón Rúnar
Kiddi:
Ég þekkti manninn ekkert en hafði mjög gaman af skrifum hans hérna á spjallinu... Mjög svo leiðinlegar fréttir :neutral:
Samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina hans...
Kiddi.
Jón Geir Eysteinsson:
Fallinn er frá einn fróðasti Barracudu- maður á landinu langt fyrir aldur fram. Hebba kynntist ég fyrir rúmum 20 árum þegar hann átti 90% allra Barracudu bíla á landinu , allt á sama tíma, þessir bílar voru hans líf og yndi á þessum tíma.
Samúðarkveðjur til fjölskyldu hans
Jón Geir
dodge74:
Votta fjölskyldu og vinum Herberts alla mína dýpstu samúð.
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version