Skráning er nú hafin í þriðju og síðustu umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram í landi Hrauns í Ölfusi laugardaginn 11. september. Það eru Bílaklúbbur Akureyrar og Torfæruklúbburinn (Formula Offroad Club) sem halda þessa keppni. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu
ba@ba.is og það sem koma þarf fram við skráningu er:
Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Skráningu lýkur mánudaginn 6. september kl. 23:59.-
Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér:
http://ba.is/page/keppnisreglurF.h. Spyrnudeildar BA
Garðar Garðarsson
gg@ba.is