Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur

Sandspyrna á Sauðárkróki - SKRÁNING

(1/1)

Bílaklúbbur Akureyrar:
Skráning er nú hafin í aðra umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram í landi Garðs við Sauðárkrók laugardaginn 28. ágúst. Það eru Bílaklúbbur Akureyrar og Bílaklúbbur Sauðárkróks sem halda þessa keppni. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu ba@ba.is og það sem koma þarf fram við skráningu er: Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Skráningu lýkur mánudaginn 23. ágúst kl. 23:59.-

Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér: http://www.ba.is/page/keppnisreglur

F.h. Spyrnudeildar BA

Garðar Garðarsson
gg@ba.is

Navigation

[0] Message Index

Go to full version