Skráning er nú hafin í aðra umferð Íslandsmótsins í sandspyrnu en keppnin fer fram í landi Garðs við Sauðárkrók laugardaginn 28. ágúst. Það eru Bílaklúbbur Akureyrar og Bílaklúbbur Sauðárkróks sem halda þessa keppni. Skráning fer fram í tölvupósti á netfanginu
ba@ba.is og það sem koma þarf fram við skráningu er:
Nafn ökumanns og kennitala, gerð ökutækis og flokkur ásamt upplýsingum um akstursíþróttaklúbb. Skráningu lýkur mánudaginn 23. ágúst kl. 23:59.-
Keppnisgjald er krónur 5. þúsund og skal greiðast inn á reikning 565-26-580 kt. 660280-0149. Upplýsingar um reglur Íslandsmótsins í sandspyrnu má finna hér:
http://www.ba.is/page/keppnisreglurF.h. Spyrnudeildar BA
Garðar Garðarssongg@ba.is