Kvartmílan > Alls konar röfl

Aðvörun til allra bílakaupanda

<< < (2/2)

Linda123:
Fór með bílinn á verkstæði þar sem hann fór ekki í gang, þar var mér sagt af bifvélavirkja með 30 ára reynslu að bensíndæla væri ónýt og bensínleki sem hann hafði lagað sjálfur væri hreint út sagt sjúsk, hann hefði átt að nota járn en notaði gúmmí og plast. Þessi bifvélavirki sagði að það borgaði sig ekki fyrir mig að láta laga þetta, hann myndi ekki einu sinni leyfa börnunum sínum að sitja í þessum bíl því það gæti kviknað í honum hvenær sem er..!
Get ekki útskýrt betur þetta með plastið og gúmmíið þar sem ég hef voða lítið vit á bílum en þið sem hafið vitið skiljið þetta alveg pottþétt :P

Kiddi:
 :roll: :roll:

Linda123:
Frekar fúlt... svo nú situr maður eftir bíllaus, með sárt enni og tóma buddu... og gaurinn örugglega að plana næstu sölu :cry:

bcool:
Sæl <Linda>
Af lýsingunni að dæma virðist sem að mótstaðan í tanknum ( það er að seiga sá hluti af benzin tanknum sem að sér vélinni fyrir eldsneyti) sé orðin mjög illa farin. En það er mjög algengt að það gerist fyrir bíla sem að eru orðnir 10-15 ára en yfirleytt eru þetta tvö stundum þrjú rör sem að fæða og taka frá vélinni sem að eru orðin mjög illa ryðguð... En þetta má laga á mjög auðveldan hátt, ég mun smíða og beygja ný rör og silfurkveikja  og mun ég gera þetta fyrir þig án neins kostnaðar af minni hálfu. Það er að seigja ef að þú lætur rífa mótstöðuna úr og kemur henni til mín....
M.B.K
Bjarki Sigurðsson
Vökvatengi ehf
421-4980

Linda123:
Vá fallegt af þér :D Eins og ég segi er ég algjör sauður í bílamálum en skal spyrja bifvélavirkjann minn hvort þetta sé bilunin þá hef ég pottþétt samband við þig...!!

Navigation

[0] Message Index

[*] Previous page

Go to full version