Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Camaro Z28 '84 (Myndaflóð)
Toni Camaro:
Var búinn að gera einhverntíman þráð um þennann en fann hann ekki en ég ákvað að deila með ykkur því sem er búið að gerast með þennann.
Svona leit hann út þegar ég fékk hann.
Svo var byrjað að rýfa, skera og sjóða.
Svo var mótorinn tekinn og þrifinn. Ég man ekki alveg öll details á honum en hann er nokkuð sprækur. 350 með 0.30 bor, þrykkta kollháa stimpla, Eagle sveifarás, olíugötin fræsuð, öflugri olíudæla en orginal, portuð hedd og stífari ventlagormar en ég man ekki alveg hvernig hedd eru á honum. Centerforce kúpling og T-5 kassi.
Info um knastásinn.
Búið að sprauta vélasalinn, mótorinn kominn í og búið að taka aðeins til í rafkerfinu.
Tók allann tektil úr hjólaskálunum og sprautaði svo með grjót vörn.
Svo var byrjað að sprauta.
Teppið úr '98 Camaro smell passaði nema þurfti aðeins að klyppa það þar sem 4th gen er aðeins breiðari. Svo eru einnig sætin úr '98 Camaro
Aftur endinn orðinn tilbúinn.
Skópið límt og boltað niður.
Kominn litur á frammendann og brettin.
Bíllinn kominn niðrí Poulsen til að fá framrúðu
Húddið orðið klárt.
Og bíllinn kominn samann.
Minn og SS Camaro hjá Gutta félaga mínum.
Svo eiga eftir að fara undir hann C5 Corvettu felgur 17" að framan 18" að aftan og Ls1 bremsukerfi vonanandi fyrir sumarið
Moli:
Góóóóóður! 8-)
bauni316:
þetta er orðið helvíti magnað hjá þér hefði verið til í að gera einhvað svona við minn en nei hehe #-o en til hamingju hvenar kemur hann svo hingað á höfn?
Toni Camaro:
--- Quote from: Moli on May 06, 2010, 12:55:10 ---Góóóóóður! 8-)
--- End quote ---
Takk Maggi, maður reynir hehe :D
--- Quote from: bauni316 on May 06, 2010, 13:23:40 ---þetta er orðið helvíti magnað hjá þér hefði verið til í að gera einhvað svona við minn en nei hehe #-o en til hamingju hvenar kemur hann svo hingað á höfn?
--- End quote ---
Takk Pálmi, er samt ekki voðalega sáttur með sprautu vinnuna, það þarf að sparsla húddið í kringum skópið og ýmsir aðrir smáhlutir. Svo á eftir að finna toppklæðningu, er ekki alveg viss um að það passi úr 4th gen. En stefnan er að reyna koma honum austur á morgun.
trommarinn:
þetta er svo drullu nettur bíll hjá þér, til hamingju =D>
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version