Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Challenger
hemi-ice:
Það var til 1970 Plum crazy Challenger með hvítan viniltopp og hvíta rönd eftir hliðinni og hvítur að innan.sá bíll var orginal 6 cyl og sjálfskiptur. Man eftir honum inni í Básenda eða Ásenda í bústaðahverfinuí kring um 1973-75.
Moli:
--- Quote from: Guðmundur Örn Guðmundsson on April 08, 2010, 21:06:25 ---Blessaðir
Rauðbrúni Challengerinn á mynd nr. 2407 og 2362 var í minni eigu þegar þessar myndir voru teknar. Mynd nr. 214 er sennilega af honum einnig, en tekin einhverjum árum síðar. Fastanúmerið á þessum bíl var AI-800 og þegar ég átti hann var hann með G-4402. Þessi bíll var árg. 70 en skráður árg. 71. Ef ég man rétt þá kom hann nýr í gegnum umboðið en var eftirársbíll og ekki nýskráður fyrr en 1971. Það sem var öðruvísi við þennan bíl að hann var með rafmagns rúðuupphalara og sjálfskiptur í stýri. Orginal var í honum 383. Ég er 16 ára þegar ég eignast hann 1977. Þá hafði hann oltið á Breiðholstbrautinni, það var búið að rífa hann og selja flest úr honum. Búið var að setja upphalarana og hurðaspjöldin í Hemi-inn, (sem ég fékk til baka frá Kjartani), 440 magnum vél fékk ég hjá Viggó sem átti RT-inn, afturhásinguna úr Hemi-inum (undir hann var sett dana 60). Six-pakið kom síðar, edelbrock og Holley. Ekki má gleyma Shaker húddinu en það var orginal á Hemi-num. Ég kaupi undir bílinn Fenton felgur og Kelly dekk. Það tók 19 mánuði að gera bílinn upp. Einnig má minnast á það, þar sem menn eru að velta þessum bílum fyrir sér, að liturinn á Heminum og R/T bílnum voru meira út í brúnt. Þessi var rauðbrúnn. Ég læt nokkrar myndir fylgja. Veit einhver hvar þessi bíll er í dag?
kveðja
Guðmundur Örn Guðmundsson
--- End quote ---
Sæll Guðmundur,
Takk fyrir þetta innlegg þitt, varpaði miklu ljósi á þessar vangaveltur! :wink:
Meðfylgjadi er eigenda- og númeraferill AI-800:
Eigendaferill
12.12.1986 Guðmundur Bragi Jóhannsson Bergvegur 20
20.10.1985 Einar Geirtryggur Skúlason Fífusel 35
24.05.1985 Ásdís Sólrún Arnljótsdóttir Álagrandi 23
29.08.1983 Ásmundur Kristinn Ásmundsson Goðheimar 8
17.10.1977 Guðmundur Örn Guðmundsson Fagraberg 16
14.11.1977 Ólafur Friðbjörn Ólafsson Hæðarbyggð 10
Skráningarferill
Dags. Skráning
10.04.1990 Afskráð -
01.01.1900 Nýskráð - Almenn
Númeraferill
12.01.1987 G9282 Gamlar plötur
19.11.1985 R14623 Gamlar plötur
30.05.1985 R62327 Gamlar plötur
14.09.1983 R7901 Gamlar plötur
27.07.1979 G4402 Gamlar plötur
25.11.1976 R51532 Gamlar plötur
kv. Maggi (sá sem hringdi í þig út af Mustang sýningunni um daginn!) 8-)
--- Quote from: Kiddi J on April 08, 2010, 21:14:47 ---Gaman að þessu,
Moli...Veist þú meira um sögu TvíburaChallans ?
--- End quote ---
Sæll Kiddi, ekkert meira en það sem hefur komið fram hér.
--- Quote from: Diesel Power on April 08, 2010, 23:02:39 ---Tvíbura Challinn var orginal með frekar fáa aukahluti:hvíta innréttingu,hvítan vinil topp,fc7 plum cracy litur(aukahlutur sem kostaði 15$ árið 1970),318 ssk,stokk á milli sæta með slap stick skifti,power stýri,ákeirslupúða á fram stuðara og enga rúðuupphalara fyrir afturrúðurnar.Hann var ekki með power bremsur og var með skálar allan hringinn.Ég heyrði á sínum tíma að firsti eigandinn að honum hér á landi hafi verið smiður í Rvk. og dóttir hans hafi rúntað mikið um á honum þegar hún fékk bílpróf og að liturinn hafi þótt mjög púkalegur.
--- End quote ---
Sæll Jón,
Átt þú engar myndir af honum eins og hann var þegar þú áttir hann? Blár m/svartan vinyl? Geturðu ekki skellt þeim á netið? 8-)
Moli:
--- Quote from: hemi-ice on April 08, 2010, 23:15:15 ---Það var til 1970 Plum crazy Challenger með hvítan viniltopp og hvíta rönd eftir hliðinni og hvítur að innan.sá bíll var orginal 6 cyl og sjálfskiptur. Man eftir honum inni í Básenda eða Ásenda í bústaðahverfinuí kring um 1973-75.
--- End quote ---
Það mun þá væntanlega vera bíllinn sem Tóti endaði á að rífa í kring um 2000, sem endaði á Geymslusvæðinu.
Eigendaferill
29.12.1987 Kristján H Erlendsson Hátún 2
19.9.1986 Þór Sigurðsson Skúlaskeið 16
13.6.1986 Hannes Einarsson Þingás 47
6.5.1981 Guðmundur Jónasson Suðurhólar 18
6.6.1973 Gunnar R Gunnarsson Litlagerði 8
Skráningarferill
9.10.1992 Afskráð -
6.6.1973 Nýskráð - Almenn
Númeraferill
19.9.1986 T287 Gamlar plötur
16.6.1986 R4634 Gamlar plötur
11.5.1981 R22888 Gamlar plötur
6.6.1973 R357 Gamlar plötur
Diesel Power:
Ég skoðað þennan 6cyl árið 1992/3 hjá Kristjáni í Keflavík.Þá var búið að rífa hann fyrir málningu skelin var þá sjúklega heil,það þurfti bara að ryðbæta um 10x10cm bót í v.afturbrettinu allt annað járn strí heilt.Kristján seldi húsið sitt og lenti í geimslu vandræðum með þennan og 71 varahluta bíl,enduðu inni í gömlu fiskverkunar húsi og ryðguðu í hel þar.
Ég reini að setja inn myndir af mínum frá því þegar ég átti hann næstu daga(ég er hálf spastískur í tölvu málum,þarf að finna einhvern til að skanna fyrir mig)
crown victoria:
sjá þessa skottgrind....
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version