Er með stuttan dodge ram van b250 til sölu þetta er fyrrverandi varnarliðsbíll og er forskráður man ekki hvað hann er keyrður en hann er 1993 árgerð með 318 og gluggum allan hringin.
Málið er að ég verslaði bílinn fyrir 400 þúsund og var sagt að hann ætti að fara sæmilega í gegnum skoðun en þegar betur var að gáð þá voru fjaðraupphenglisn riðguð í sundur að aftan og þau voru smíðuð en þá kom í ljós að grindarbitinn sem upphengslið skrúfast í var ryðgaður í sundur og var smíðuð ný skúffa í bitann og hún léttilega soðin í en það þarf að klára suðuvinnuna í kringum skúffuna og í skuffuna sjálfa.
þegar ég fékk hann voru handbremsu barkarnir ónýtir að aftan og voru þeir smíðaðir fyrir mig og eru komnir í bílinn einnig skifti ég um pakkdósina í afturhásingunni hægra megin því þar var leki.
Útaf ástandi bílsins fékk ég annann sviðpaðan bíl sem er ógangfær með 6 cyl vél en er ýmislegt nýtilegt í honum það fylgdi varahlutabílnum ekki skráning og fylgir hann með einungis sem varahlutabíll.
Ég ætla setja 200 þús staðgreitt á pakkann þar að seygja glugga vaninn sem var gangfær þegar honum var lagt og þarfnast suðuvinnu í afturenda og varahluta bílinn með.
Ef áhugi er fyrir hendu sendið þá á mig message en vegna þess hvað ég borgaði fyrir bílinn fer ég ekki niður fyrir 200 þús stgr, ég skoða skifti á mótorhjóli eða 2 dyra amerískum bíl. en þá er skiftiverð hærra.
Ég get sýnt bílinn á opnunartíma geymslusvæðisins ef áhugi er fyrir hendi
Kv Arnar H Óskarsson
Ps ég er ekki desparate í að selja þetta þannig að það þýðir ekkert að prútta og skiftir mig ekki öllu máli þó ég geymi þá í nokkur ár í viðbót til að gera við.