Author Topic: Nú Þú Sjálfsþjónusta  (Read 3047 times)

Offline KristjánJóhann

  • In the pit
  • **
  • Posts: 55
    • View Profile
    • Flickr Myndasíða
Nú Þú Sjálfsþjónusta
« on: January 30, 2010, 18:36:20 »
Nú Þú vill hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft. Margir hverjir geta vel gert að bílum sínum og sinna sjálfir en hafa ekki aðstöðu til þess. Einnig eru svo margir sem vilja þrífa bílana sína sjálfir en nenna ekki að hírast úti til þess og tíma að borga fúlgu fyrir að láta þrífa þá fyrir sig.

NÚ ÞÚ býður upp á þrifalega og þægilega aðstöðu og áhöld til bílaviðgerða og þrifa, þar sem allir eru velkomnir í kaffisopa.  :)

Nú...svo er líka oft einfaldlega bara skemmtilega að gera hlutina í góðum félagsskap í góðri stemmingu á skemmtilegum stað ;)

NÚ ÞÚ státar af rúmgóðu og þrifalegu húsnæði á Hvaleyrarbraut 2 í Hafnarfirði, neðan við húsið.
Bjóðum upp á góða aðstöðu til bílaviðgerða og þrifa.

Á staðnum eru 2 stk. 2 pósta lyftur til viðgerða og ein bónlyfta undir þrif.
Bjóðum upp á úrval af tækjum og verkfærum.
Verðum með fjölbreytt vöruúrval af ræstivörum fyrir bíla, olíur, helstu síur, þurrkublöð og annað smálegt til sölu.
Möguleiki er á að fá aðstoð frá kunnáttumanni.
Einnig ef fólk kemst í þrot að kvöldi til, er möguleiki að fá leigðan bíl.

----

Verðskrá:

1500 kr. Klukkutíminn á stæði fyrir þrif og bón. Innifalið í því eru nauðsynleg tæki til þrifa.

2000 kr. Klukkutíminn í bónlyftu, 3½. tonna til að bóna eða þrífa.

2500 kr. Klukkutíminn í 2. posta, 4. tonna lyftu með grunnverkfærum.

Opið frá 09:00 - 23:00 alla daga. :)

-----

Facebook síðan okkar:

http://www.facebook.com/album.php?aid=-3&id=725960554#/pages/Nu-pu-Sjalfsbjonusta/267589546491?ref=ts

Vefsíðan okkar:

www.nuthu.is (Er í vinnslu)

Við erum hérna:























Subaru 'Leone' STi '86
Subaru Legacy GT '97
Dodge Neon SRT-4 '05
M.Benz 260e w124 '86

http://www.flickr.com/kristjanjohann

Vinsamlegast ekki nota ljósmyndirnar mínar í leyfisleysi!