Kvartmílan > Aðstoð

Chevy 2.8V6/3.8V6???

(1/2) > >>

bluetrash:
Getur einhver mögulega sagt mér hvort þessar vélar séu nokkurn vegin eins?
Meina passar 3.8V6 1980 á skiptingu af 2.8V6 1988 Er með S-10 Blazer 1988 2.8 V6 og er að pæla hvort CLEAN svapp sé möguleiki? Hvort 3.8 mótorinn passi ekki beint ofaní?

Endilega þeir sem geta veita mér upplýsingar um þetta.

Svenni Devil Racing:
er næstum 100% viss um að það sé ekki sama skiftingar hús útaf það er minna V i 2,8

jeepcj7:
Þetta passar ekki 2.8 er 60 gráðu V og er með minna kúplingshús.

bluetrash:
Er þá eins og mig grunar sami halli á þessu og V8?

Ég gæti notað skiptingu af 4.3V6 á þetta?

Jón Þór Bjarnason:
Ég er ekki alveg sammála strákunum.

Ég var að svappa úr 2.8L V-6 yfir í 3.8L V-6 í Pontiac Fiero.
2.8 er úr Fiero 3.8 er úr Buick.
Ég nota sama gírkassa vandræðalaust og mótorfestingarnar eru nánast alveg eins.
Ég er með 1984 bíl og nýji mótorinn er 1997
Að vísu þá ertu með það gamlan mótor að ég þekki hann ekki.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

Go to full version