Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Rally Sport Camaro..
Kristján Skjóldal:
nú jæja hann er þá bara Camaro 72 ekki RS :D
Moli:
--- Quote from: Kristján Skjóldal on December 09, 2009, 18:24:52 ---nú jæja hann er þá bara Camaro 72 ekki RS :D
--- End quote ---
Þarf ekki að vera, það kemur ekki fram í VIN# eða cowl tag hvort hann sé RS eða ekki.
ABG:
Var ekki alltaf deluxe innrétting í RS ?
GunniCamaro:
Það er skrýtið og svekkjandi að GM hafði sitt hverja aðferðirnar á milli ára við að merkja aukalega á hvalbaksplötuna, eitt árið var kannski mestallt merkt (t. d. 1967) og svo árið eftir (1968) var ekkert aukalega merkt.
Það var t. d. ekki hægt að sjá í VIN eða hvalbaksplötunni hvort bíllinn væri small block eða big block, bara V8 eða L6.
Þannig að til að sjá og sanna hvaða gerð og aukahlutir voru upprunalega í eldri Camaro þurfti að hafa nótuna frá umboðinu (window sticker), eða "protect-o-plate" eða "build sheet" sem var falin á ýmsum stöðum í bílnum.
Valmöguleikar í innréttingum voru aldrei hengdar við einhverjar gerðir (RS, SS eða z-28), þær voru valmöguleiki í hvaða camaro sem var og bekkur fram í var bara boðinn í fyrstu kynsl.
Harry þór:
Sæll Kristján Skjóldal. Ég á orginal Motion sílsalistana :roll: sem eru rándýrir en þú getur fengið þá fyrir ekkert. Þetta er flottur bíll og flott vinna hjá Grétari og Jóni og Þórhalli snilling sem lagði ofboðslega vinnu í þennan bíl.
mbk harry
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version