Kvartmílan > Aðstoð
volvo vesen
(1/1)
Ramcharger:
Sælir.
Ég er búinn að eyða 4 dögum í að finna út hvað
sé að mínum eðal 740.
Það kemur straumur niður í kveikjuna
og háspennukeflið er í lagi.
Málið er að hann drap á sér á föstudaginn
þegar ég var að ath hvers vegna dagljósa
búnaðurinn hefði farið af sterkari geislanum
á parkljósunum.
Þegar hann gerði það teigði ég mér í
lykilinn og startaði aftur en hann
tók ekki við þannig að ég settist
upp og gaf honum smá.
En þá var eins og kæmi svaka kveikjubank
og ekkert meir eftir það þangað til
eftir um 15 min þá datt hann í gang.
Fór heim og þar er lét ég hann ganga
þangað til að hann drap á sér aftur
og þá tók hann við sér þegar hann var í startinu
en ekki þegar ég sleppti lyklinum.
Tek fram að ég er búinn að prufa annan kv.botn og
annað lok og hamar og það kemur straumur
niður í hana þegar er svissað á hann.
Einnig er ég búinn að skipta um rely
sem er í innraframbretti vinstra megin
og einnig tölvuna.
Öll ráð og aðstoð vel þegin
Ég er alveg strand og búinn á þessu og get ekki meir.
Ég er ekki með netið heima en það næst í mig í 8634304.
Halldór H.:
Háspennukeflið er ónýtt hjá þér.
Ramcharger:
Málið er reddað.
Það er lítill magnari í innra vinstra frambretti sem var dauður :mrgreen:
Ég fékk einn lánaðan sem reyndist dauður líka.
En þegar ég fór að grafa í geymslunni,
þá fann ég einn í lagi og bingo, rauk í gang 8-)
Navigation
[0] Message Index
Go to full version