Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur

Akstursíþróttamaður BA 2009

<< < (3/5) > >>

Brynjar Nova:
Til lukku með þetta  8-)

Harry þór:
Heill og sæll Ragnar og til hamingju með frábæran árangur. Skulda kók og prins  :P

mbk frá race town Harry Þór

Dodge:
til hamingju með vel verðskuldaðann titil!  =D>

69Camaro:
Innilega til hamingju Ragnar, áttir þetta svo sannarlega skilið 

kv.
Ari

1966 Charger:
Þakka ykkur góðar kveðjur og óskir racebræður! 
Má til með að segja ykkur að þeir dembdu á mig þessu óhræsis flotta bikar B.A. félagarnir.  Ég þurfti að skrúfa hann  í sundur til að koma honum suður með flugvélinni.  Það var þó ekki allt: Október skrallið var haldið í iðnaðar- og skemmtihúsahverfi Akureyrar.  Ég rogaðist þaðan seint um nótt, eftir að hafa fengið gædaðan túr um Forddjásnin í höfuðstöðvum Olafsson Brothers Racing.  Bikarhlunkinn hafði ég í svörtum ruslapoka á bakinu.  Löggan ók fram úr mér á illa lýstri Kaldbaksgötunni en tók snarlega 180 gráðu beygju um leið og heilastöðvarnar í þeim höfðu numið að miðaldra kall í leðurjakka með svartan ruslapoka á bakinu í iðnaðarhverfi um miðja nótt væri ekki að tína þar flöskur.  Þetta var í fyrsta skiptið sem menn í Econoline með fallegum bláum ljósum veitir mér athygli...................þegar ég er gangandi.

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version