Kvartmílan > Alls konar röfl
Tafir á framleiðslu steðjanúmera
AlliBird:
Fornbílaspjallið er bilað svo ég nöldra bara hér . .
Vegna innflutningstakmarkana á áli sem er notað í framleiðslu á steðjanúmerum eru tafir á framleiðslu númeranna og hefur ekkert verið hægt að smíða síðan í byrjun júlí, eftir því sem segir á forsíðu FBÍ
En- bíddu bíddu . . . erum við ekki með þetta fína álver hérna rétt við borgarmörkin ?!?
Trans Am '85:
Vantar greinilega fleyri álver, þessi sem eru fyrir eru ekki að ná að anna eftirspurninni í númeraplötur...
Valli Djöfull:
Það er að sjálfsögðu mjöööög furðulegt að flytja ál úr landi, búa til vörur úr því þar og flytja vörurnar heim. Getum við ekki gert alveg helling sjálf?
Af hverju eru ekki fyrirtæki hér á landi að búa til fullunnar vörur úr áli og flytja út? Rugl að senda þetta ál allt úr landi, má alveg halda smáá broti eftir hér og vinna eitthvað úr því :) Henda upp einni álfelguverksmiðju eða svo :)
R 69:
Það er áframvinnsla á áli hjá Alcoa fyrir austan.
Þeir eru m.a. að vinna rafstrengi.
Valli Djöfull:
--- Quote from: Helgi69 on August 26, 2009, 18:10:11 ---Það er áframvinnsla á áli hjá Alcoa fyrir austan.
Þeir eru m.a. að vinna rafstrengi.
--- End quote ---
Ok, ekki vissi ég það.. En mér þykir þetta afar furðulegt með númeraplöturnar, af hverju ætli það þurfi að flytja það inn þegar nóg er til af því hér..
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version