Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
3. umferð íslandsmótsins í kvartmílu - skráning -æfingu frestað til föstudags
Jón Bjarni:
Sælir Félagar Góðir
Nú er komið að fimmtu keppni sumarsins.
Þetta er 3. umferð íslandsmótsins, hún fer fram laugardaginn 15 Ágúst
Dagskrá:
9:30 – 11:00 Mæting Keppanda
10:00 – 10:45 Æfingarferðir
11:00 Pittur lokar
11:05 Fundur með keppendum
11:20 Tímatökur hefjast
13:20 Tímatökum lýkur
13:20 – 13:45 Hádegishlé
13:45 Keppendur Mættir við sýn tæki
14:00 Keppni Hefst
16:25 Keppni lýkur
16:55 Kærufrestur liðinn
17:00 Verðlaunaafhentng
Til að taka þátt þarftu að hafa:
Gilt ökuskírteni
Skoðaðan bíl
Hjálm
Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið:
Flappinn@simnet.is
Nafn
Kennitala
Keppnistæki
Bílnúmer
Flokkur
GSM
Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu.
Nánari upplýsingar í síma 8473217, Jón Bjarni
SKRÁNINGU LÝKUR Fimmtudagskvöldið 13. Ágúst Á SLAGINU 00:00
þegar skráningu er lokið verður EKKI hægt að skipta um flokk nema að flokkurinn innihaldi aðeins einn keppanda.
Þeir sem eru ekki vissir í hvaða flokk þeir ætla að skrá sig í:
Það er leyfilegt að skrá sig án þess að tilgreina flokk.
Þá getur fólk mætt á æfinguna og ákveðið hvaða flokk það á heima í.
Það fær samt einginn að keyra á þessair æfingu nema að vera búinn að skrá sig og borga keppnisgjöld
Dagskrá keppninar verður birt síðar
Mæting er á milli 9:30 og 11.
Á slaginu 11 verður hliðinu lokað og þeir sem mæta eftir það verða ekki með.
ATH til keppanda.
Þeir sem mæta á keppnisæfinguna þurfa ekki að fylla út skráningarblaðið aftur.
ALLIR KEPPENDUR EIGA AÐ KOMA VIÐ Í FÉLAGSHEIMILINU OG FÁ DAGSKRÁ Á LAUGARDEGINUM ÁÐUR EN ÞEIR FARA NIÐUR Í PITT!!!!!!!!!!!
Til að flýta fyrir skráningu þá er gott ef menn geta komið með þetta skjal útfyllt.
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?action=dlattach;topic=42742.0;attach=44370
Æfing sem er aðeins ætluð keppendum verður haldin Fimmtudaginn 13. Ágúst
Æfingin byrjar upp úr 19:00
Keppnisgjöld verða að vera greidd fyrir Kl: 00:00 Fimmtudaginn 13. Ágúst
ATH. Þetta er loka frestur á keppnisgjöldum nema eitthvað komi uppá hjá mönnum og þeir geta ómögulega greitt keppnisgjald á réttum tíma.
Enginn fer niðrí pitt fyrr en keppnisgjöld hafa verið greidd
Einnig ætla ég að biðja sem flesta að reyna að millifæra keppnisgjöldin
Reikningsnúmerið er:
#1101-26-111199
Kennitala:
# 660990-1199
Keppnisgjaldið er 5000kr
KOMA MEÐ KVITTUN ÚR HEIMABANKA
Keppendur undir 18 ára aldri þurfa skriflegt leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum
Ef það eru einhverjar spurningar þá er ykkur velkomið að hringja í síma 847-3217, Jón Bjarni
vidir orri hauksson:
Ég var að spá í hvaða flokk ég fer og þessháttar. Ég er á alveg original 1000 súkku og var þess vegna að spá hvernig hjólum er skipt, þ.e. eftir vélastærð og einnig hvort ég keppi þá á móti breyttum hjólum með gaffallengingum og svoleiðs?????? er ég þá í I flokki standard eða eru bara 2 flokkar eins og í götmílunni
Anton Ólafsson:
Hérna
http://www.kvartmila.is/wiki/index.php/Reglur:M%C3%B3torhj%C3%B3l
vidir orri hauksson:
Thank you my good man :mrgreen:
ÁmK Racing:
Er þetta ekki lokaumferð íslandsmótsins?Kv Árni
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version