Kvartmílan > Ford
Mustang mucle car dagur
emm1966:
Mustang dagurinn verður á kvartmílubrautinni á laugardag og hægt verður að keyra á milli kl. 11 og 16.
Rukkað verður fyrir að aka brautina og rennur allur peningur óskiptur til KK.
Því hvetjum við alla vöðvabílseigendur, eldri og nýja, til að mæta og reyna með sér á brautinni óháð bíltegund!!
Enn er krafist tryggingarviðauka (en þó er verið að vinna í því máli með tryggingarfélögunum) þeir sem vilja vera öruggir þurfa því að afla sér tryggingarviðauka fyrir helgina og vera með afrit af honum með sér.
Grillaðar verða pylsur og dekk!
Hvetjum alla Mustang eigendur til að fjölmenna með bíla sína á brautina þennan dag og höldum óformlega sýningu.
http://visir.is/section/smaar01
Kveðja
Stjórn Mustang klúbbsins.
stebbsi:
Svona til að hafa það á hreinu, þarf semsagt ekki að vera félagi í KK eða Mustang klúbbnum.. Þannig maður mætir bara með viðauka og einhvern pening..
Jón Bjarni:
--- Quote from: stebbsi on June 04, 2009, 18:03:41 ---Svona til að hafa það á hreinu, þarf semsagt ekki að vera félagi í KK eða Mustang klúbbnum.. Þannig maður mætir bara með viðauka og einhvern pening..
--- End quote ---
Þú verður að vera annað hvort félagi í kk eða ba til að meiga keyra brautina
stebbsi:
--- Quote from: Jón Bjarni on June 04, 2009, 23:34:26 ---
--- Quote from: stebbsi on June 04, 2009, 18:03:41 ---Svona til að hafa það á hreinu, þarf semsagt ekki að vera félagi í KK eða Mustang klúbbnum.. Þannig maður mætir bara með viðauka og einhvern pening..
--- End quote ---
Þú verður að vera annað hvort félagi í kk eða ba til að meiga keyra brautina
--- End quote ---
já ókei.. Maður þarf að fara splæsa í klúbbinn á næstunni.. :D
emm1966:
Þú lætur sjá þig stefán og kíkir í pylsu og á grilluð dekk.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version