Kvartmílan > Alls konar röfl

Er eitthvað til af '57 Dodge Coronet?

(1/1)

Twincam:
Daginn..

Nú langar mig að spyrja mér fróðari mönnum að því hvort eitthvað sé til af '57 Dodge Coronet hér á landi?
Pápi gamli átti víst einn svona í dentíð og ég er með mótorinn úr honum inni á verkstæði hjá mér.
Einnig hefur maður látið hugann reika að því hve gaman það væri ef maður kæmi skítugum loppunum yfir svona bíl að
skvera hann til og afhenda þeim gamla það í sjötugsafmælisgjöf .. sem nálgast óðfluga  :-$


Var víst eitthvað í líkingu við þetta, nema bara blár og hvítur...


mbk
Rúnar P

Gummari:
það er einn svona á safninu á leið til skagaströnd óuppgerður en stendur inni getur tékkað á honum  :wink:

Björgvin Ólafsson:

--- Quote from: Gummari on June 03, 2009, 10:26:54 ---það er einn svona á safninu á leið til skagaströnd óuppgerður en stendur inni getur tékkað á honum  :wink:

--- End quote ---

Skagafirði Gummari :wink:

kv
Björgvin

Twincam:
Já, var búinn að heyra af þessum í Skagafirðinum, langaði að vita hvort menn hefðu vitneskju um fleiri slíka gripi hérlendis...

Moli:
Hérna er einn '58 Coronet Custom Royal

Navigation

[0] Message Index

Go to full version